Rodos-Corfú og Dubrovnik.

Jæja hér er bara rólegt líf eða þannig!! Ullandi Vikan hefur verið mikið að gera í vinnunni því það þurfti að skila vsk fyrir síðustu 3 mánuði.  Um helgina var rólegt og rómantískt, var heima hjá kærastanum Fulgen og við höfðum það bara gott, kíkja á góðar bíómyndir á bíótjaldinu....horfðum meðal annars á Kill Bill sem er mynd eftir Tarantino og ótrúlegt en satt en ég mæli með þeim báðum, þetta eru 2 myndir og það verður að sjá þær báðar helst með stuttu millibili.  Svo vorum við mikið við ströndina eða í Cartagena á föstudagskvöld því það voru tónleikar með píanóleikaranum Michel Camilo (þriðja árið í röð sem ég hitti hann). Á laugardags og sunnudagskvöld fórum við til San Javier þar sem þurfti líka að stilla fyrir tónleika og síðan fórum við út að borða, rosa notalegt.  Reyndar á sunnudagskvöldið var okkur boðið út að borða með vinafólki sem býr þarna við ströndina.  Æ get ekki sagt að ég sé ekki ofdekruð hérna þessa dagana.  Börnin mín hafa það gott hjá pabba og bara frábært.  Aumingja kallinn minn er nú staddur á spítala því hann var skorinn upp í hnénu í morgun, hefur það reyndar alveg ágætt, sæki hann svo í fyrramálið.  Sé að þið eruð þó nokkuð dugleg að heimsækja mig hér á síðuna en það væri rosa gaman að vita hver þið eruð!!!! endilega að kvitta þó að það sé bara nafnið....þó að ég hafi það mjög gott þá sakna ég alltaf fjölskyldu og vina heima.

Ferðasagan heldur áfram.......á fimmtudegi 26 júní vöknuðum við, við höfnina á rodos það var frábært að sjá út allt fullt af kastalaveggjum og virkjum.  Við sem héldum að það þyrfti að fara óraleið til að sjá eitthvað fallegt hér því skoðunarferðin var í 60 km fjarlægð en við höfðum það í 5 mín göngufjarlægð frá skipinu.  Byrjuðum nú daginn samt seint og það var ekki fyrr en eftir mat um kl 15 sem við fórum frá borði. Röltum með krökkunum inn í gamlabæinn sem er umkringdur kastalaveggjum þar var sko gaman að vera fullt af litlum búðum og mjög ódýrt!!!Hlæjandi Duttum í búðarleiðangur....krakkarnir voru með okkur í rúman klst en svo voru þau orðin pínu löt þannig að ég og Chiqui fórum með þau um borð aftur á meðan Jose Maria og mamma biðu eftir okkur á kaffihúsi.  Skoðuðum meira og keyptum aðeins meira líka hehe.....en þetta var ekkert smá flottur staður.....einn af mínum uppáhaldsstöðum í þessari ferð.  Keypti kjól fyrir gala kvöldið sem átti að vera daginn eftir, hann er rauður mjög flottur.  Héldum um borð og það var suðrænn fílingur með tilheyrandi dönsum og látum.....dönsuðum mikið og fórum seint að sofa þar sem var siglingardagur á föstudeginum. Föstudagurinn var frábær um borð í skipinu og nóg að gera það skalt ég segja ykkur. Laugardagur komum við til Corfu....þar þurfti að labba ansi langt í mikilli sól og hita til að komast í gamla bæinn, þegar þangað loksins kom voru mjóar götur og ansi flott um að litast, fullt af búðum en alls ekki eins ódýrt og á Rodos.  Samt varð nú að kaupa eitthvað til minningar hehe, krakkarnir urðu eftir í skipinu sem betur fer því í þessu hita hefðu þau nú bara verið til trafala.  Um kvöldið var show eins og alltaf en eftir matinn fórum við að sjá Karaoke....krakkarnir sungu eitt lag undir lokinn.  Það var mikið talað um að ekkert hefði rignt alla ferðina........og viti menn þegar við vöknuðum daginn eftir var úði í Dubrovnik í Króatíu.   Vá þetta var allt öðruvísi landslag og mjög ólíkt þeim stöðum sem við höfðum verið á.  Fórum með strætó en þurftum að skipta peningum því þarna er ekki notuð Evra.  Þetta var barnlaus ferð að mestu leyti en Alvaro sem er 12 ára fór með okkur, hin urðu eftir í skipinu.  Ferðin var þægileg þar sem strætó stoppaði nálægt og svo var bara að skoða bæjarhlutann sem var umkringdur virkisveggjum.  Við löbbuðum hringinn á virkisveggjunum sem hafa nú líklega verið hátt í 3 km.  Annar af mínum uppáhaldstöðum var þarna.  Jæja þessi ferðasaga fer nú að verða heldur löng....en í næsta parti sem er meðal annars sá síðasti eru Feneyjar.

Vonandi er veðrið að skána hjá ykkur, sendi ykkur sólarkveðjur og knús.....endilega kvitta mua


Aþena - Santorini - Krít.

FýldurDaginn eftir vöknuðum við í morgunmat og drifum okkur í að leita okkur að leigubíl til að fara að sjá Parþanenon.  Við vorum 8 í hóp, Ég, Sóldís og börnin, Jose Maria, Chiqui og krakkarnir þeirra. Leigubílarnir sem voru fyrir utan skipið vildu nú bara buisness, bjóða þér 4klst ferð og vesen en við vildum bara taxa sem kæmi okkur þangað og tilbaka.  Hóuðum í taxa aðeins frá og þá byrjaði ævintýrið þetta var grískur kall, besta skinn, talaði í bland ensku og ítölsku eheh.  Viti menn hann tók okkur öll í einn 5 manna bíl!!!! við vorum semsagt 9 manns í venjulegum Mercedes Bens haha Hissaég hló mig brjálaða og þetta var ótrúlegt.  Sjáið þið einhvern gera þetta á Íslandi hehe.  Ferðin upp að hæðinni hefur tekið svona 20-30 mín stoppuðum í rúma klst og leigubílstjórinn beið á meðan.  Þetta var engin smá upplifun að sjá þessar gömlu rústir fyrir utan að Ólafi Katli og flestum grísunum fannst þetta leiðinlegt vegna hita og svoleiðis.....svona eru börn. Fórum niður í skip til að borða og hafa það gott og vera með í sem flestu sem var að gerast þar.  Lögðumst meðal annars í sólbað og fórum í heitu pottana.  Um kvöldið var náttúrulega nýtt show og svo borðuðum við á 4-5 stjörnu veitingastaðnum um borð.  Geggjað.......fórum að sofa seint og síðar meir.....en þá vorum við á leiðinni til eyjarinnar Santorini.

Þegar við vöknuðum daginn eftir voru þessar yndisfögru eyjar sem blöstu við. Hlæjandi Fórum upp í morgunverð og þá kom í ljós að það var hífandi rok.  Skipstjórinn ákvað þar sem ekki er bryggja á Santorini að það væri því miður ekki hægt að stoppa þar vegna vinda.  Stuttu síðar var okkur tilkynnt að við myndum stoppa á eyjunni Krít.  Okkur fannst þetta fúlt því búið var að segja okkur að Santorini væri með fallegri eyjum þarna á svæðinu og að sjá þær í fjarlægð gat maður alveg ímyndað sér það.  En það er víst ekki hægt að deila við dómarann. Skömmustulegur  Krakkarnir voru bara í krakkaklúbbnum að skemmta sér og þau voru meira og minna týnd um skipið!!  Það kom fyrir að maður hafði smá áhyggjur en samt aldrei mikið þar sem þau voru eiginlega alltaf 2-4 saman.  Eftir mat var lagt að bryggju á Krít og við konurnar ég, mamma og Chiqui fórum frá borði til að skoða okkur um á eyjunni, Jose var slappur með svima og börnin vildu bara vera um borð að leika sér.  Sem var æðisleg hugmynd.Brosandi  Við vorum um 2klst á röltinu og kíktum á eitthvað fornminjasafn sem var eiginlega mjög flott en á endanum er þetta allt svipað og hundleiðinlegt!! Krít er ágætisstaður og það var gaman að koma þangað.  Jæja svo seinnipartinn var náttúrulega bara brjálað að gera um borð í skipinu og það var æææ man ekki hvað þetta er kallað......gæjarnir að klæða sig upp sem gellur.....það var bara gaman að sjá þá suma og svo þeir sem unnu um borð í skipinu voru ekkert smá flott klæddir sem gellur.

Jæja fljótlega heldur ferðasagan áfram, ég er eins og er heima hjá mér sem kemur ekki oft fyrir þessa dagana á meðan börnin eru heima á Íslandi.  Er í dekri heima hjá kærastanum og að njóta lífsins og ætla sko að gera það til hins ýtrasta á meðan tækifæri gefst!!  Held áfram að tönglast á því að ég er að springa úr hamingju og ást þessa dagana og vona sem flestir séu jafn lukkulegir með lífið og ég þessa dagana!!!Koss  Ég kem til Íslands í byrjun ágúst og verð alveg í heilan mánuð, ætti ekki að missa af að hitta neinn.  Kærastinn kemur um 12 ágúst og verður í 10 daga.  Æi þetta verður yndislega notalegt.

Hita og sólarkveðjur héðan.


Skemmtiferðaskipið Sky Wonder!

Hér heldur frásögnin af ferðalaginu okkar frábæra áfram, svo ég láti vita þá mun ég reyna að setja inn myndir fljótlega.

Semsagt á mánudegi var flogið í 747-200 júmbó þotu frá Madridar til Aþenu höfuðborgar Grikklands. Flugið gekk frábærlega en því miður þurftum við svo að vera næstum klst til að komast niður í skipið.  Sem betur fer þurftum við ekkert að hugsa um farangur sem í raun var stórskrýtið fyrir fólk sem er vant að ferðast og hefur alltaf þurft að sækja töskur og vesenast.  Í rútunni var ógeðslega heitt, kl orðin fjögur seinnipartinn og flestir búnir að vera á ferðalagi síðan kl 7 um morguninn.

Vá þegar í skipið kom....tóku við okkur þjónar sem tóku allan handfarangur á sínar herðar og fylgdu þér í þína káetu.  Við vorum í káetu á 5 hæð af 11 nr C202.  Fengum smá sjokk þegar þangað kom því við fundum ekki rúmin barnanna, o mæ god, en svo kom herbergisþjónninn okkar og renndi rúmunum niður úr loftinu hehe.  Káetan var fín, eins og á fínu hóteli fyrir utan minibarinn sem er ekki þörf á þegar þú ert með allt borgað fyrirfram á börunum og veitingastöðunum.

Við drifum okkur nú bara upp á 8 hæð að fá okkur síðdegissnarl og kynnast skipinu aðeins, finna hlutina.  Fórum aðeins í heitu pottana og slöppuðum af, dagurinn leið hratt og við borðuðum á pizzu staðnum um borð, sáum skemmtunina sem voru flottir dansar og æði.  Fórum frekar snemma í háttinn eða um kl 1til að geta farið til Aþenu að sjá herlegheitin Parþanenon og útileikhúsið og ýmislegt fleira.

Lífið hér hjá mér er yndislegt núna, börnin fóru til Íslands til pabba síns og gekk allt vel.  Ég svíf á bleiku skýi þessa dagana því ástin liggur í loftinu og það er langt síðan mér líður svona vel. 

Stóra fréttin er að hann ætlar að koma til Íslands um miðjan ágúst þannig að þið fáið að hitta herramanninn.  Ég er að springa úr tilhlökkun :).

Knús í bili og meira mjög fljótlega.


Komin heim eftir eftirminnilegt frí.

Þið verðið nú að fyrirgefa að það sé ekkert blogg komið um ferðalagið okkar fræga.  En það er búið að vera svo mikið að gera að það er bara varla heilbrigt.

Nú við vorum þarna í Madrid yfir helgi og það var æðislegt, fórum í Warner bros park, tókum litla frænku okkar með sem er jafngömul Ólafi Katli hún heitir Petra og er dóttir Valda frænda.  Ég undirrituð fór ein í alla rússíbana sem ég fann í garðinum og þeir voru ótrúlegir.  Nema Ólafur Ketill herti sig upp og fór í trérússíbanann sem ekki fer á hvolf en hann kom niður og sagði ALDREI AFTUR!!  Síðan var grillað heima hjá Valda og Mar um kvöldið, rosa notalegt.  Daginn eftir ætluðum við til Madridar aftur en það varð ofan á að fara bara í sundlaugina hjá þeim og hafa það rólegt.  Brunuðum svo á flugvöllin á mánudagsmorgun kl 7 til að fara í brjálaða röð, en vorum snemma í því þannig að við biðum ekki mjög lengi.  Þetta var rosa Jumbó þota sem tekur rúmlega 500 manns og bara byrjunin á ævintýralegu ferðalagi.

Ætla að skrifa áframhaldandi um ferðalagið á næstu dögum, því í dag er afmælið hennar Perlu Lífar!!! Gellan er orðin 6 ára.  Hún fékk 2 pör af eyrnalokkum frá bróður sínum og svo svona tölvudúkku frá mér. Pening og stuttbuxur frá ömmu Sóldísi.  Svo er pínu afmæli seinnipartinn í dag hérna úti á róló. Þannig að tíminn í dag er naumur.  Þau fara svo í flug til Íslands annað kvöld.

Knús frá öllum hér, kvitta mua


Hér komum við Madrid.

Þá er sko komið að því að við leggjum land undir fót.  Nú brunum við af stað á Toyotunni til Madridar.  Þar ætlum við að vera í 3 nætur og 2 daga.  Ætlum aðeins að sjá borgina og svo að fara í Warner bros garðinn með börnin. Hlæjandi  Svo á mánudaginn er langþráða ferðalagið í augnsýn, fljúgum frá Madrid til Aþenu og þá verður farið í lúxusinn.  Skemmtiferðaskipið vá mar.

Hér er vikan búin að fljúga síðan Mamma kom er ýmislegt búið að gera!! verslunarleiðangur og margt fleira.  Haldið þið ekki að hún hafi fengið fyrirfram afmælisgjöf.....geðveika myndavél.  Takk fyrir hana þangað til hægt verður að hringja í viðkomandi.

Fullt verður tekið af myndum sem verða settar á netið þegar tilbaka kemur.

Knús og kvitta mua Koss


Gleðilegan Þjóðhátíðardag allir íslendingar nær og fjær!!!

Til hamingju með daginn öll, hér er hann eins og hver annar en við hugsum til ykkar. 

Jæja blessaður tíminn flýgur og meira þegar það er nóg að gera.  Þessa vikuna er búið að vera nóg að gera. Ólafur Ketill er búin með nokkur próf í fyrsta líffræðiprófinu fékk hann 10, málfræði fékk 9,75 hann fékk í lesdæmum í reikningi 8 og í helstu atriðum í reikningi plús, mínus, sinnum, deiling og tölurnar 10.  Hann stendur sig eins og hetja, það gætu verið 3-4 próf eftir en hann virðist fara létt með þetta.

Við höfum haft nóg að gera í vikunni, Belen og Paula voru með okkur á mánudaginn frá kl 18-21. Svo á þriðjudaginn var foreldrafundur kl 13 í bekknum hans Ólafs Ketils, eftir það fór ég að borða með Chiqui sem er konan hans Jose, borðuðum á okkur gat á kínverskum.  Seinnipartinn áttu börnin að fara í sund en þeim var boðið í afmæli hjá bróður stelpunnar sem Ólafur er skotin í.Ullandi Ekki nóg með það að hann er sko búin að fá ýmsar staðfestingar að það er gagnkvæmt......úff er að verða tengdó!!!!Hissa hjálp, svolítið snemmt, en þetta er nú alveg saklaust og þau hafa nú ekki einu sinni talað um þetta sín á milli.  Þetta er fyrsta hrifningin, hún er voða sæt og jafn dugleg og Ólafur í skólanum.  Á meðan þau skemmtu sér í afmæli fór ég á stúfana, kaupa fermingargjöf, kíkja eftir einhverjum fötum fyrir ferminguna, en sá ekkert. Fýldur Svo skrapp ég í vinnunna í klst og sótti þau svo.

Á miðvikudag fór mín í andlitshreinsun og það var nice en VONT Gráta þegar hún tók nefið hélt ég að ég myndi deyja. En haha er hér enn sem betur fer.  Rúmlega kl 16 komu dætur Berglindar, Sonia, Laura og Christina og voru með okkur til um 20 þegar Berglind kom tilbaka úr vinnunni.  Við fórum að sjá Ólaf Ketil í Tennis og hann er farin að hitta svo vel að það er frábært að sjá hann.  Var yfir mig stolt af honum, hann var sjálfur ánægður og vill halda áfram á næsta ári.  Vorum svo bara á róló.

Fimmtudagur var sund og alltaf nóg að gera þegar þeir dagar eru, kl 20,30 um kvöldið var haldin smá veisla hérna uppi á þaki með nágrönnunum til að kynnast og svoleiðis.  Allir komu með eitthvað og við vorum alveg til að vera 23.  Minn heitt elskaði kom um kvöldið þreyttur eftir ferðalagið, töskurnar urðu eftir á leiðinni og eitthvað vesen.

Svo á föstudag var hin fræga ferming Lauru dóttur Jose og Chiqui. Ég hef aldrei verið viðstödd Kaþólska fermingu en Ólafur Ketill fór í eina fyrir 2 mánuðum.  Þetta var mjög spes sérstaklega því þetta var í litlu nunnuklaustri við hliðina á búðinni og frændi hennar var presturinn.  Jafn lengi að líða og heima því skal ég sko lofa ykkur.Óákveðinn Á eftir var haldið á veitingastaðinn og þetta var eins og fínasta brúðkaup!!! Þvílíkur matseðill, hoppukastali fyrir krakkana og bara yndislegt kvöld.  Fórum heim að sofa um kl 1 eftir miðnætti.

Í dag erum við búin að vera að undirbúa komu Sóldísar ömmu (mömmu), gera hreint og taka til.  Svo bara í rosalegum rólegheitum. Krakkarnir fóru á róló seinnipartinn og ég fór út að hlaupa í 10-15 mín, þoli enn ekki meira en þetta kemur allt. Glottandi  Svo erum við bara að deyja úr spenningi fyrir ferðina frægu, veit að ég er að verða þreytandi með allt þetta mont en er að springa sjálf. Þið verðið bara að fyrirgefa mér Koss Knús og endilega kvitta


Búið að borða á sig gat.

He he, helgin var mjög fín.  Frá síðustu færslu fórum við til Silviu og Nando og þar skemmtum við okkur alveg til seint um kvöld.  Börnin voru í Play station, horfa á heimsmeistarakeppnina, leika sér úti og við kellurnar að kjafta. Brosandi

Á sunnudaginn var nú bara fínasta veður en samt ekkert týpískt veður hérna því það er líft hehe.Buðum Lolí og Zaidu að borða með okkur kjúlla í ofni og franskar svona frekar íslenskur matur. Fyrst vorum við reyndar bara úti á róló og svo eftir mat var farið aftur út á róló í svolitla stund en þar sem Ólafur Ketill og Zaida áttu að fara í próf í dag var það frekar stutt.

Ég fór með bílinn minn í athugun í dag því hann lekur olíu, þar sem það er nú ekki eðlilegt fyrir svo nýjan bíl þá eru þeir með hann í 1-2 daga til að athuga hann til hlýtar og laga það sem að er.  Við brunum á meðan um á píanóbílnum sem er nú alltaf í pínu uppáhaldi hjá mér, það er opel Corsa sem er með auglýsingum frá búðinni, fengum hann í láni hjá Jose. Á eftir förum við í leikfimi og tennis, litlu trítlurnar hennar Belen vinkonu koma með okkur því það var eitthvað vesen með pössun.

Á morgun er það svo endurskoðanda vesen og foreldrafundur í bekknum hans Ólafs Ketils.  Gæinn lætur heyra reglulega í sér og við erum voða hamingjusöm. Koss

Bæ í bili, munið að kvitta Ullandi


Vatnsblöðruslagur.

Hí Hí já það var sko gaman hjá okkur í gær. Okkur var boðið til Jose og konunnar hans til að vera á hátíð sem þau halda á hverju ári í júní.  Það er svo kölluð vatnsblöðruslagshátíð hehe.  Við komum þangað seinnipartinn og Paloma var með okkur, farið var í bikini, krakkarnir voru á sundfötum einum saman en við gellurnar í einhverskonar þunnum kjólum yfir.  Fljótlega byrjaði slagurinn, þeirra næstu nágrannar eru með í þessu og það voru notaðar slöngur, vatnsbyssur og blöðrurnar.  Við vorum á floti vá en þetta var brjálað stuð Svalur ég hef aldrei gert svona áður en það var sko þess virði.  Eina sem vantaði og er sjaldgæft hérna á þessum slóðum var sólin!!!! Ef þið takið eftir því á Íslandi að það er mikill hiti þá er svalara hérna hjá okkur.  Hissa Þannig að við vorum rennvot og að frjósa úr kulda eða þannig, það hafa verið svona 25-30° en sólin hitar svo mikið að maður tók eftir því.

Síðustu dagar eru búnir að vera rólegir, ég er rosalega stolt af sjálfri mér ....er byrjuð að hlaupa í leikfimi, sem ég hef aldrei haft þrek ne þol í og mér gengur bara rosalega vel.  Er búin að ná að hlaupa stanslaust í 7 mín á 9 km hraða, veit það er ekkert svakalegt en fyrir mér er það svaka árangur.  Svo er sambandið mitt að ganga æðislega vel, ástfangin og hamingjusöm.  Hann er reyndar í ferðalagi núna en þökk sé skype þá erum við í símasambandi í gegnum tölvurnar frítt, netvæðingin er æðisleg. Koss

Þó að það sé búið að vera rólegt þá þyngist hjá honum Ólafi Katli mínum því nú koma prófin fyrir allann veturinn og það er að læra utanaf....allavegana í líffræði ansi mikið.  Hann er svo rosalega duglegur að hann er nú ekki lengi að því.  Hann hagar sér eins og engill Saklausnúna því það styttist í afmæli stelpunnar sem hann er skotin í og þá er nú betra að vera góður til að fá að fara.

Spenningurinn eykst líka stöðugt fyrir hið langþráða ferðalag okkar og að amma Sóldís komi loksins til okkar.

Í dag ætlum við að fara til Nando, Silviu, Nando og Mariu sem er vinafólk okkar, krakkarnir eru jafngömul Ólafi Katil og Perlu Líf og við skemmtum okkur alltaf rosa vel þegar við erum þar, komum aldrei fyrr en kl 23 heim eða eitthvað.  Þau eru reyndar með sundlaug en eins og ég gat til um áðan þá eruð þið með hitann og góða veðrið þannig ég efast um að hún verði notuð í dag. Óákveðinn

Vona að þið njótið góða veðursins!!!


Frábær Helgi.

Hæ Öllsömul.

 Hvað segist, hér segist allt bara frábært.  Það var svo gaman að fá Evu, Þór, Kötu og Guðna í heimsókn, ef ég á að segja ykkur satt hefði verið gaman að geta haft þau lengur en það sem við erum þakklát fyrir að þau hafi allavegana komið við hjá okkur!!! Glottandi Þau kíktu eina nótt enn sem var á sunnudagskvöld eða nótt réttara sagt þegar þau voru búin að vera að hringsóla í kringum húsið okkar í klst hahaha Hlæjandi, það var sko settur bjór í glas og kjaftað frameftir, síðan fóru þau á ströndina í Murciu og snéru beint heim til Barcelona.

En helgin.....á laugardag vorum við í verslunarleiðangri fyrri partinn og svo var glápt á sjónvarpið, lesið og spilað í Play station þangað til krakkarnir skruppu út á róló aftur með hjólin með sér. 

Alveg rétt fengum frábæran pakka sem beið okkar á föstudag.....bókapakki frá Brynju og co, hann kom sér ekkert smá vel, búið að liggja í þeim. Knús fyrir það elskurnar Koss

Ástarsagan heldur áfram á þessu heimili og ég held að ég sé að springa, við vorum saman allan sunnudaginn og krakkarnir að fíla sig í botn. Borðuðum saman og höfðum það frábært, fengum okkur spænska siestu á meðan krakkarnir voru góð að horfa á mynd í sjónvarpinu.  Hann er svo góður við okkur öll og krakkarnir mjög ánægð.  Þannig á lífið að vera!!!Glottandi 

Spenningurinn eykst með hverjum deginum að amma Sóldís láti sjá sig og að við förum í þessa langþráðu ferð á skemmtiferðaskip.  Vá það verður geðveikt!!!Svalur  Það sem við ætlum að njóta þess!Verst að Perla Líf missir af útskriftinni úr yngri deildinni upp í 6 ára bekk, sem er mikil hátíð hérna og mikið haft fyrir en við eigum eftir að skemmta okkur í Madrid og á skemmtiferðaskipinu í staðinn. Kennarinn hennar dýrkar hana og er mjög sorgmædd yfir þessu, ætlum að gefa henni eitthvað sætt.

Ekki nema 2 vinnudagar eftir af þessari viku, hér er frí í héraðinu á föstudaginn.

Söknum ykkar allra og það styttist óðum.


Komin helgi aftur og júní, sem þýðir sumar....

Jæja þetta er nú búin að vera góð vika skal ég segja ykkur.  Nú erum við búin að fá útborgað, geðveikt rík er ég vááGráðugur  Vikan gekk svona nokkurn veginn sinn vanagang fyrir utan gæjann sem ég er að verða kreisí in LOVE með haha Koss  Hann er mesta dúllan í heiminum...... Það er sko búið að vera fullt af ýmiskonar æfingum hahaha. Ullandi Við erum búin að fara í leikfimi, tennis og sundæfingar nema í gær skrópuðum við.  Fengum langþráða gesti Hlæjandi  Eva Hrönn, Þór, Kata og Guðni komu sko keyrandi alla leið frá Barcelona og til okkar!!!  Fór nú út að borða með þeim á El Patio sem var alveg frábært, sérstaklega því þeim fannst þetta allt svo gott. Svo var nú bara kíkt á Murcia bæ, löbbuðum að heiman og skoðuðum allt sem á vegi okkar varð.  Síðan um Kvöldið var nú bara rölt aftur út og út á ZIG ZAG þar fórum við á Kebab stað sem er nú bara allt í lagi.  Gæinn lét sig ekki vanta, vill kynnast mínu fólki. Tala af sér

Þau fóru í morgun en koma sko aftur á sunnudagskvöldið þegar þau eru búin að fara um Granada og líklegast Cordoba.  Það styttist nú í að ég fái hvíta flygilinn minn hahaha Hissa

Í dag má nú ekki skrópa í leikfimi það er bannað.....æi já gleymdi að viðurkenna að við skrópuðum á miðvikudaginn vegna þvílíkrar úrhellisrigningar sem var sko svo slæm að ég blotnaði upp að hnjám.  En það var útaf því að við þurftum að fara í eftirlit til tannsa með krakkana en það var sko allt í fínasta lagi með þessar glæsilegu tennur.

Það eru ekki nema 20 dagar þangað til við förum til Madridar. jibbí

Knús......endilega kvitta elskurnar......ein in Love í mikilli heimaleikfimi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband