Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Húsbíll óskast til leigu!!!

Verð að misnota aðstöðu mína aðeins. Vantar einhvern auðfengin pening???? Það eru að koma til landsins þann 8 ágúst til 15. ágúst 4 spánverjar sem langar að leigja húsbíl í þennan tíma. Verðhugmyndin var 1000€-1200€.  Ekki láta þetta tækifæri sleppa!! Endilega hafið samband.

Bloggið er hálf yfirgefið.

Já páskarnir þustu hjá eins og ekkert væri....og tíminn líður alltof hratt til að vita hvað honum líður eiginlega. Svo er fésið búið að yfirtaka svolítið bloggheiminn og ég verð að viðurkenna að þar hef ég haldið mig undanfarið.  Við höfum það samt öll mjög gott og engin svínaflensa hjá okkur, þó að einhver tilfelli hafi greinst hér í héraðinu...ekki er ég vitund smeyk við þetta enda held ég að það sé engin ástæða til eins og staðan er í dag.  Börnunum gengur vel í skólanum og nú þegar daginn er farin að lengja þá sér maður þau varla.  Þau eru úti að leika, því hér á Spáni núna er hvorki of heitt né of kalt og fólk úti með börnin til rúmlega 9 á kvöldin eins og ekkert sé.

Barsarnir eru að kollkeyra öllu hérna og það er frábært, við erum stuðningsmenn þeirra.  Ég er komin aftur með íþróttabakteríu og fer út að hlaupa 2-3 í viku og hjóla nánast alla daga í vinnuna.  Þetta er fyrir bikinið sem verður nú dregið út úr skápnum fljótlega.  Ströndin bíður, höfum ekki farið enn ...algjör synd en á morgun er planið að kíkja á Íslendingana sem eru hér staddir og hitta þá á ströndinni.  Auðvitað kíkir maður á evróvision á morgun og þó að ég sé á Spáni þá er það bara áfram Ísland!!!

Ég brákaðist á vísifingri um daginn að spila padel og var í heila viku með puttann í hafti og nú er ég laus en ég finn stundum enn til, en auðvitað er ég farin að spila aftur ekki eins mikið en...get ekki verið mjög lengi kyrr. 

Stend mig mjög vel með einka enskutímana og það hjálpar sko, fjárhagnum...get ekki annað sagt.

Jæja þetta var stutt uppfærsla af okkur....erum cool í sólinni.

Knús og kram á alla


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband