Fín helgi.
12.11.2006 | 22:23
Hér erum við bara í fínu yfirlæti eftir að það hætti loksins að rigna hehe. Veit ekki hvað ég er að kvarta en hvað um það. Fórum út að borða .....fullorðna fólkið, ég, Þurý og Steinar á föstudag og svona mat sem ekki er hægt að fá á Íslandi....eitthvað öðruvísi. Borðuðum yfir okkur og svo röltum við í bæinn og höfðum það gott heima um kvöldið með rauðvín og osta. nammi namm. Síðasta búðarrápið var svo farið á laugardagsmorgunn og það bara konurnar o my...það er hættulegt, enda kom það í ljós....ansi margir fullir pokar haha. Kvöddum okkar fínu gesti um kl 14 þá vorum við boðin að borða grill hjá vinum Fulgen og þau ætluðu bara að fara tía sig í áttina að Alicante.
Aftur var borðað á sig gat og úff. Gat ekki einu sinni borðað kvöldmat. Ólafur er nú byrjaður aðeins að læra á píanóið og gengur vel hehe. Það verður gaman að vita. æi er ansi syfjuð og ætla að Óska henni Hrafnhildi systur minni til hamingju með stórafmælið!!! Knús frá spáni.
Vonandi hættið þið ekki að kvitta og kíkja á okkur þó að það sé komið lykilorð!!!
Knús og kossar
Þetta er ótrúlegt.....
8.11.2006 | 20:49
Jæja kæru vinir, nú væri gaman að vita hvort maður er bara að tala til vina. Ástæðan fyrir því að ég læsti blogginu eru endalausar árásir á síður vina og vandamanna frá einhverjum sem ekki líkar við mig. Ég ætlaði nú ekki að láta deigan síga og læsa síðunni, vegna einhvers vitleysings en nú er ég búin að fá nóg. Árásirnar hafa verið mjög bífræfnar og mikið ráðist á börnin sem ég líð nú alls ekki. Nú getur þessi persóna hugsað um að ráðast á einhvern annan, það er verst með netið að maður getur nú ekkert vitað hvort þessi manneskja er einhver sem maður þekkir en ég nenni ekki að spá í þessu.
Nú ætla ég bara að hugsa um ykkur vini mína og passa að láta þetta ekki eyðileggja þetta fyrir mér.
Hér er loksins hætt að rigna virðist vera og á að vera sól á morgun, æi loksins segi ég nú bara. Fór í leikfimi eftir alveg heila viku án þess að gera nokkuð, nú er ég þreytt og ætla að fara í sturtu, svo bara að leggjast í rúmið og horfa á imbann.
Knús til ykkar
Rigning og meiri rigning.
7.11.2006 | 20:20
Þetta er búið að vera ótrúlegt hér er nú bara búið að vera skýjað og rigning í nærri viku, spánverjarnir eru himinlifandi að fá vatn en þetta er nú samt svolítið mikil breyting. Það er nema rétt rúm vika sem við vorum að farast úr hita og það var rúmlega 30° en nú er hitinn ekki nema kannski 15-18°. Hehe einmitt um það bil 20° sem hitastigið hefur dottið niður á nokkrum dögum.
Það er nú búið að vera nóg að gera svosem fyrir utan það venjulega, fengum kærkomna gesti á laugardaginn og eru þau búin að vera í rigningunni hérna. Þetta eru Þurý og Steinar, við erum nú samt búin að hafa það mjög gott þrátt fyrir sólarleysið. Þau eru allavegana búin að sjá Murciu eitthvað og í dag fóru þau til Almeríu til að skoða og hafa það notalegt á fínu fjögurra stjörnu spa hóteli. Ætla nú að komast í samband við þau til að vita því það eru búin að vera flóð alls staðar hérna og það er best að vita að þau séu heil á höldnu. Fékk alveg haug af fötum fyrir Perlu Líf á sunnudaginn og það var sko vel þegið, hún hefur stækkað svo mikið að það var allt bara að verða of lítið. Ég fór nú í afmæli á laugardagskvöldið en það var bara farið út að borða og haft það notalegt, var reyndar með slatta hausverk svo að ég fór nú bara snemma heim.
Já verð nú að monta mig að ég fór og keypti mér stígvél sem hún mamma mín ætlar að gefa mér í jólagjöf haha, ég veit það er rúmur mánuður þangað til. En það er sjaldan sem ég verð svona hrifinn af einhverju, mér bara fannst ég verða að kaupa þau og er ekkert smá hamingjusöm með þau. Notaði þau einmitt á laugardagskvöldið og þau voru ekkert smá þægileg. Börnin hafa það bara frábært, varð reyndar að læsa síðunum þeirra en þeir sem okkur þekkja senda mér bara email til að fá aðgangsorðið, það er ótrúlegt hvað fólk á bágt og skemma fyrir öðrum en það er sama.
Vonum nú að það fari að sjást til sólar hehe. knús
Setningar á ensku sem er nokkuð til í.
1.11.2006 | 20:10
I've learned....That life is like a roll of toilet paper. The closer it gets to the end, the faster it goes.
I've learned....That we should be glad God doesn't give us everything we ask for.
I've learned....That money doesn't buy class.
I've learned....That it's those small daily happenings that make life so spectacular.
I've learned...That under everyone's hard shell is someone who wants to be appreciated and loved.
I've learned....That the Lord didn't do it all in one day. What makes me think I can?
I've learned....That to ignore the facts does not change the facts.
I've learned....That when you plan to get even with someone, you are only letting that person continue to hurt you
I've learned...That love, not time, heals all wounds.
I've learned...That the easiest way for me to grow as a person is to surround myself with people smarter than I am.
I've learned....That everyone you meet deserves to be greeted with a smile.
I've learned...That no one is perfect until you fall in love with them.
I've learned....That life is tough, but I'm tougher.
I've learned...That opportunities are never lost; someone will take the ones you miss.
I've learned....That when you harbor bitterness, happiness will dock elsewhere.
I've learned...That I wish I could have told those I cared about that I love them one more time before they passed away.
I've learned....That one should keep his words both soft and tender, because
tomorrow he may have to eat them.
I've learned...That a smile is an inexpensive way to improve your looks.
I've learned....That I can't choose how I feel, but I can choose what I do about it
I've learned....That everyone wants to live on top of the mountain, but all the happiness, and growth happen while you're climbing it.
I've learned....That the less time I have to work, the more things I get done.
Fyrirgefið að þetta sé á ensku en nennti ekki að þýða þetta hehe
Bíó, Halloween party og fleira
1.11.2006 | 18:19
Hæ og hó, hvað segist.... hér allt frábært að frétta bara. Er svosem búið að vera nokkurn veginn sama rútínan en alltaf eitthvað. Hér bilaði örbylgjuofnin fyrir 2 vikum síðan og ég dreif mig loksins um helgina að kaupa nýjan, þar sem ég var búin að kíkja á helstu verðin í stærstu og bestu búðunum duttum við niður á einn sem var ódýr og fínn. Þetta var á laugardaginn ég keypti mér reyndar hlægilega ódýrar buxur og nokkra hálfsíðermaboli fyrir veturinn sem er nú reyndar bara ekkert að láta sjá sig hér á þessu landi. Hér er hitinn búin að vera yfir 30° á hverjum degi í meira en viku en það fer kannski niður í 15-17°á nóttunni en þetta er ótrúlegt.
Vorum boðin í mat til Jose og Chiqui eina ferðina enn og þar var boð vegna dýrðlingadags Lauru sem er haldið hér, er haldið næstum því meira en afmæli en þetta var fínt. Perlu og Ólafi var svo boðið að sofa en á endanum fór Perla Líf með Lauru að sofa heima hjá ömmu hennar því restin fór í bíó. Fullorðnafólkið, ég, Fulgen, Paloma og Chiqui fórum á nýju myndina Woody Allen Scoop og mér fannst hún frábær, en krakkarnir fóru að sjá spænska mynd sem fær mjög góða dóma. Ólafur Ketill fór og gisti hjá Alvaro en ég hjá Fulgen æi það var notalegt eftir svona langan tíma.
Í gær var heljarinnar halloween party hjá Jose og þeim. Krakkarnir voru öll klædd í búninga og um allt hverfið þarna því þetta er í hverfi aðeins fyrir utan og bara raðhús og svoleiðis og ekki miklar hættur á ferð. Það sem þau söfnuðu af nammi, peningum og allskonar sem fólk gaf þeim. Fullorðna liðið hafði það bara gott með bjór, sangríu og fullt af alls konar smáréttum. Komum ekki heim fyrr en um miðnætti og þá beint að þrífa málninguna framan úr sér og fara að sofa.
knús
Helgin
22.10.2006 | 18:23
Helgin kom skemmtilega á óvart. Fórum í afmæli á föstudaginn og það sem var nú ekki frásögufærandi nema það rignir nánast aldrei hérna í Murciu en akkúrat þurfti að byrja að rigna. En því var nú bara reddað með segli enda var þetta ekki neitt neitt sem mátti nú við búast.
En aðal var það að Nabila kom óvænt frá Alicante og gisti hjá mér um helgina, því ég var Perlu Lífar laus þá losaði hún sig við orminn og var bara ein með mér. Við nutum þess því á laugardaginn var hálfgerður stelpu dagur við fórum 4 saman Nabila, Ana, Chiqui kona Jose og ég í leiðangur í nýju verslunarmiðstöðvarnar sem eru hér. Þetta eru 2 verslunarmiðstöðvar með næstum 400 búðum reyndar eru sumar endurteknar en vá mar. Eyddum ekki miklum peningum, mjög góðar stelpur. Ólafur Ketill var bara á flakki með vinum og hafði það mjög gott líka.
Pælingar.......
22.10.2006 | 17:55
Jæja er nú að hugsa um að setja einhverjar pælingar hérna inn sem eru búnar að vera að veltast í hausnum á mér síðustu daga. Þetta er svo sem ekkert mjög merkilegt en ég er mikið búin að vera að velta fyrir mér lífinu í hnotskurn. Hvernig okkur líður.....erum við glöð, leið, ástfanginn eða í ástarsorg.....eða finnst bara kannski best að vera ein með sjálfum okkur.
Er búin að vera velta þessu fyrir mér, við göngum öll í gegnum öll þessi tímabil eða hvað á að kalla þetta. Og meira að segja stundum getum við verið tvennt í einu eða að morgni yfir okkur hamingjusöm en svo seinnipart dags er gjörsamlega allt að hrynja yfir okkur. O my god, mottóið mitt er undanfarin ár þetta að lífið er svo rosalega stutt, það er búið áður en við áttum okkur á. Þannig að mín skoðun er sú að njóta þessara stunda sem við erum hamingjusöm, glöð, ástfangin og ánægð með sjálf okkur út í ystu æsar og gera þær sem lengstar!!!! Það er að segja ef við höfum möguleika á því. Og svo aftur á móti að reyna að gera minna úr þessu erfiðu og döpru stundum, auðvitað getur verið hængur á því en guð minn góður gera allt til að gera þessa stuttu ferð okkar sem ánægjulegasta hér á jörðinni. ÞAÐ GERIR ÞAÐ ENGIN FYRIR ÞIG!
Ég óska þess og það sem mig skiptir máli eru kærasti minn, vinir mínir og fjölskyldan, þetta fólk er mér svo kært. Ég persónulega án vina gæti ekki lifað og sem betur fer er ég þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga fullt af mjög góðum vinum. Takk fyrir að vera þarna þó að sambandið sé inn á milli takmarkað þá eru þeir þarna og taka vel á móti mér á mínum þegar á bjátar og til að njóta góðra stunda. Reyndar hef ég rekist á nokkur vandamál á þessu ári en þau hafa öll verið yfirstíganleg og mismunandi erfið að takast á við. Sum hafa tekið mikið á andlega en önnur leysir maður áður en hendi er veifað. Stundum er erfitt að komast að því að fólk sem maður heldur að maður þekkir....í rauninni þekkir þú það ekki neitt og það veldur þér vonbrigðum og biturð. En ef vinir bregðast manni þá er lítið annað að gera en að láta sem ekkert sé og snúa sér annað. Það getur verið mjög sárt en.....það verður að velja þig eða þann sem traðkar eða þér líður ekki vel með.
Jæja held að ég sé hætt í bili. Það væri rosalega gaman að fá viðbrögð við þessum pælingum og skoðanir. Ég óska öllum vinum mínum að þeir séu ástfangnir, heilir heilsu og njóti lífsins á þessari stundu. Ég er ástfangin og líður frábærlega þessa dagana og ætla að njóta þess og ekki að fara leynt með það. Samgleðst ykkur.
Kossar og knús.
Afmæli
19.10.2006 | 19:28
Hér höfum jafnað okkur af pestinni en held að við höfum smitað hálfan bæinn!!! Ja við eða einhver annar en allaveganna eru meira og minna allir búnir að fá þennan andsk..... Fulgen og co, Jose og bara allir, vonum að þetta sé að verða búið. Nú er tengdó farin til Madridar og fer á morgun til Mexíkó, guð má vita hvort við sjáum hann aftur en við vonum það nú. Hann er ansi hress miðað við aldur, orðin 79 ára og flakkar svona enn.....
Ég var í nýju búðinni í Albacete í dag og það varð á endanum hringavitleysa með krakkana en auðvitað reddaðist það, sem betur fer er það ekki oft sem þarf að redda því ég er ekki en.... Gott að eiga góða að sem geta þó hlaupið til á síðustu stundu. Á morgun á að halda afmælið Nando og Mariu og við vonum að það rigni ekki, því hér eru afmælin oft haldin úti og það á að gera það einmitt á morgun. En hér rigndi smá í dag og í gær líka svo það er að krossleggja fingur að þetta verði í lagi.
Perlu Líf er svo boðið í heimsókn til vinkonu sinnar Christinu um helgina að gista framm á mánudag, við Ólafur Ketill eigum nú bara eftir að hafa það náðugt.
Hafið það gott og endilega kvitta hehe
Veikindi!!!!Oj
15.10.2006 | 20:48
Hér er nú búin að vera vírus á ferð......það er á hreinu. Perla Líf byrjaði á fimmtudaginn, sem var frídagur á að vekja mig eldsnemma því henni var illt í maganum, stuttu seinna kastaði hún upp. Við vitum nú flest að börnin eru ótrúleg hún vildi lítið borða en svo seinnipartinn var hún sko nógu hress til að fara út að leika á hjólinu og allt. Loli og Zaida borðuðu hjá okkur um daginn, svo fór Zaida til annarrar vinkonu en Loli var hérna. Þegar hún fór þá skrapp til Bélen og við vorum þar í ca klst. Ótrúlegt en satt að þegar Perla var að borða kvöldmat þá ældi hún aftur.
Allir voru hressir á föstudaginn, þangað til um kvöldið þá byrjaði upp og niðurgangur hjá mér, o my god, hræðilegt. Fulgen ætlaði að koma og ég sagði honum að mér liði mjög illa en hann kom og meira að segja gisti alla nóttina til að passa mig. hehe. Hann er yndislegur!! Ólafur Ketill byrjaði líka um nóttina og þar sem ég var að deyja þá gat ég ekkert sinnt greyinu, sagði honum að reyna að slaka á og reyna að sofa meira. Litla greyið mitt.
Fulgen fór snemma til að fara að vinna og svo áttum við að fara að borða til að kveðja tengdó, varð að vera um helgi til að sem flestir myndu koma. En heilsan var...... ekki kannski alveg nógu góð til að fara borða veitingahúsamat!!!! Reyndi en....það kom því miður mjög fljótt tilbaka. Þannig að við fórum fljótt heim aftur. Sem betur fer var krökkunum boðið í afmæli seinnipartinn þannig að ég fékk frið til að hvíla mig og jafna mig.
Dagurinn í dag er svo búin að vera frábær, ég og Ólafur Ketill erum búin jafna okkur, þannig að við borðuðum morgunmat og hádegismat með Fulgen og co. Svo fengum við fulla poka af fötum frá Miguel þannig að Ólafur Ketill drukknar í fötum á endanum hehe. Á morgun skila ég VSK þannig þá er það frá!!! Jibbý. Þangað til næst, vonandi er pestin ekki komin á klakann úff.
Ofdekruð........ ;)
8.10.2006 | 16:08
Hehe Jæja erum nú bara hér í rólegheitunum í dag en erum í raun búin að vera í dekri hjá vinum og vandamönnum. Á föstudaginn var nú bara sama og venjulega vinna og skóli. Svolítið stress í vinnunni því það styttist í að borga vsk en þetta reddast allt. Þegar ég var að fara að fara heim þá fór ég að finna til í hnénu og hugsaði með mér ónei!!!! nú get ég ekki farið í leikfimi á eftir. Fór heim og borðaði og ákvað að ég skyldi nú ekki láta deigan síga og fara, þó að ég myndi hlífa hnénu sem ég og gerði en var samt þokkalega dugleg.
Á laugardaginn var svo tiltekt og ég var á fullu og kláraði að mestu ekkert smá stolt verð að segja það því mér leiðist virkilega að þrífa!!! En tók líka mesta af gluggunum sem eru ekkert smá skítugir eftir þessa klikkuðu rigningar hér þó að þær séu litlar rignir drullu, ótrúlegt.
Fórum svo út að borða með allri tengdafjölskyldunni hrísgrjón og æðislega gott. Þetta var svona afmælisveisla fyrir Jose, mömmu hans og systir. Borðuðum svo köku þar og vorum þar þangað til sent um kvöld. Krökkunum var svo boðið að gista, sem var fínt. Ég keyrði Miguel til pabba hans og svo við ætluðum í bíó en komum seint. Horfðum bara á dvd heima og fórum svo að sofa.
Í dag borðuðum við öll morgunmat saman á kaffiteriu og vorum aðeins í miðbænum að spássera. Sem betur fer er hnéið að lagast svo að þetta verður í lagi!!