Þetta er ótrúlegt.....

Jæja kæru vinir,  nú væri gaman að vita hvort maður er bara að tala til vina.  Ástæðan fyrir því að ég læsti blogginu eru endalausar árásir á síður vina og vandamanna frá einhverjum sem ekki líkar við mig.  Ég ætlaði nú ekki að láta deigan síga og læsa síðunni, vegna einhvers vitleysings en nú er ég búin að fá nóg.  Árásirnar hafa verið mjög bífræfnar og mikið ráðist á börnin sem ég líð nú alls ekki.  Nú getur þessi persóna hugsað um að ráðast á einhvern annan, það er verst með netið að maður getur nú ekkert vitað hvort þessi manneskja er einhver sem maður þekkir en ég nenni ekki að spá í þessu.

Nú ætla ég bara að hugsa um ykkur vini mína og passa að láta þetta ekki eyðileggja þetta fyrir mér. 

Hér er loksins hætt að rigna virðist vera og á að vera sól á morgun, æi loksins segi ég nú bara.  Fór í leikfimi eftir alveg heila viku án þess að gera nokkuð, nú er ég þreytt og ætla að fara í sturtu, svo bara að leggjast í rúmið og horfa á imbann.

Knús til ykkar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Kíkti aðeins inn á bloggið þitt og er hjartanlega sammála. Það er sorglegt til þess að vita að , hemm....FÓLK skuli fá útrás á þennann hátt. Þessi hegðun bendir til að viðkomandi sé alvarlega andlega veik/ur. Hinsvegar er stundum skynsamlegast að hörfa fyrir ofbeldinu, þetta er nefnilega of langt gengið.

Baráttukveðjur,....bið að heilsa öllum, mamma.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 9.11.2006 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband