Áfram ég híhí.

Jæja mér finnst svo miklu skemmtilegra að blogga núna eftir að ég opnaði aftur haha. Er ekki viss afhverju en það er eins og fleiri kíki inn og svoleiðis.  Ég er nú búin að hafa það gott í dag fór út að borða með vinnufélögunum eða eitthvað af þeim þannig nú er að fara í tvöfalda leikfimitíma til að ná því af sér.  

Annars er ég búin að vera að prófa laser á nárann, var alveg komin með ógeð af vaxi og vélum upp fyrir haus.  En það er ótrúlegt hvað þau hafa horfið hratt hárin ég er í skýjunum, fyrir sumarið verð ég laus að mestu við þetta vandamál.  Stelpur ég mæli eindregið með þessu, er meira að segja að hugsa um að gera þetta á fleiri stöðum þó að þetta sé helsti staðurinn sem fer í pirrurnar.  En ef það eru engin hár að trufla enn betra.

Krakkarnir eru á leiðinni í sund, og á meðan fer ég að púla.  Ólafur Ketill var í prófum um daginn og heldur sínu striki 9,5 í meðaleinkunn hæstur sjöttu vikuna í röð.  Þau fara í próf í hverjum kafla á 2 vikna fresti og meirihlutann af vetrinum hefur hann verið hæstur.  Ekki hægt að kvarta yfir þessari elsku.

jæja verð að rjúka, þið styrkið mig elskurnar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Hæ Guðrún. Flott hjá þér að opna aftur bloggið, að láta einhvern misheppnaðan vesaling    komast upp með að halda sér í gíslingu, er ófært.

Frelsið er yndislegt...tra..la..la..la..la.. 

Kíktu inn á bloggið mitt,þar eru nefnilega myndir sem mér tóks að kalla fram, þær eru virkilega fínar.  Heyrumst....Sóldís

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 7.2.2007 kl. 17:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband