Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Það eru ekki nema 2 dagar eftir...
30.8.2006 | 20:49
Já æi verð að viðurkenna stór mistök að mér láðist að skrifa þakkir til Guðrúnar Önnu og Dinis fyrir lánið á bílnum þá daga sem við höfðum hann í láni. Hann kom sér frábærlega og sérstaklega þá daga sem stórfjölskyldan var hér þó að það væri stutt, þá. Takk kærlega fyrir þetta er æðislegur bíll, (auðvitað toyota hehe) og rosa gott að keyra hann. Einnig gleymdist Sirry og co í Grindavík en vona að ég hafi ekki gleymt neinum fleirum. Er víst bara mannleg .
Jæja en Gullni hringurinn var tekinn aftur í dag það var frábært í þessu veðri sem við fengum. Byrjuðum á að koma við á Stokkseyri hjá pabba og Henar var auðvitað með í för, (var búin að fá bíl í láni aftur) þreytandi manneskja úff. Ég verð að viðurkenna að maður er að verða þreyttur á að vera svona upp á aðra komin, ég er farin að lengja eftir mínu rúmi, íbúð og mínum bíl, það verður unaðslegt. Vona að þið takið það ekki nærri ykkur en Heima er best. Svo fórum við á Selfoss, kíktum á vinkonu mína Tínu sem er nýbúin að opna herrafataverslun þar hún er bara flott, með Blend merki ofl. Síðan á KFC sem var bara gott. Kerið, Geysir og Gullfoss, við skemmtum okkur vel en maður kemur þreyttur heim.
Erum nú bara í rólegheitum, krakkarnir úti að leika og notalegt. Á morgun er bláa Lónið og heimsóknir.
Knús í bili.
Erum búin að vera svo heppin með veður.
29.8.2006 | 09:56
Jæja nú fer að síga á seinnihluta ferðarinnar. Við Fulgen höfðum það svo yndislegt síðustu dagana hans hér á landi, heimsóktum pabba á Stokkseyri og fórum á þennan æðislega veitingastað við Fjöruborðið. Fulgen var himinlifandi, fengum geggjaða humarsúpu og humar auðvitað. Svo varð að fara að Gullfoss sem hafði verið sleppt í fyrri ferðinni hahah. Fórum svo í heita pottinn hjá Össa og Kötu sem var náttúrulega bara kósí. Síðasta daginn vorum við aðeins í heimsóknum og bara að slappa af. Hann er núna á norður Spáni að kenna á námskeiði en hitti hann eftir mjög stuttan tíma.
Ég er nú með gest frá Murciu,vinkona mín sem heitir Henar. Verður hún hérna með okkur þangað til að við förum öll á Laugardaginn. Þannig að nú er bara að fara allann ferðamannahringinn aftur.
Fór norður um daginn og það var frábært. Verð nú að þakka öllum vinum mínum fyrir frábærar móttökur. Þórey og fjölskylda, Össi bróðir og Kata takk fyrir gestrisnina. Hrólfur og Sólveig sem lánuðu okkur íbúð og bíl í 2 vikur, vá það er ekki hægt að hugsa sér betri vini. Svo auðvitað allir hinir Áslaug og Arnar, Steinunn og Dóri, Ásta og Þröstur, Dabba mín kæra, Laufey og co, Valgerður og bara allir. Þið eruð frábær og hvenær sem farið er til spánar vitið þið hvar við erum.
Ætla að fara drífa mig af stað. Knús
Mikið að gera á Íslandinu....
27.8.2006 | 16:07
Jæja loksins komið að því að ég driti einhverju hérna niður, ég er búin að vera blogginu mínu til skammar, hreint út sagt. Æi þegar yndið mitt hann Fulgen kom til Íslands þá verð ég bara að viðurkenna að mestur tími fór nú bara í hann og svo börnin okkar þegar þau komu og voru hjá okkur.
Fengum að vera tvö saman frá föstudagskvöldi og fram á aðfaranótt mánudags en þá komu Paloma (17ára) og Miguel (11ára) börnin hans 2 frá Spáni. Við nutum helgarinnar bara mjög vel, kíktum á Reykjavíkina, Perluna, augnablik á Gay Pride, fórum í sund og bara nutum þess innilega að vera saman aftur.
Þegar börnin voru svo öll komin þá þurfti náttúrulega að fara að sjá náttúruperlur Íslands eins og Geysir, Þingvelli, Laugarvatn og Bláa Lónið svo eitthvað sé nefnt. Eitt af stærstu upplifelsinu að koma til Íslands var að það var vináttulandsleikur í fótbolta milli Íslands og Spánar. Fulgen hafði aldrei í sínu heimalandi séð sitt lið spila og varð því að fara að elta kappana á æfingu, upp á hótel og svo fara á aðalleikinn....sem var svo ekkert spes. Krökkunum fannst þetta geðveikt sport og þau náðu þarna einhverjum eiginhandaráritunum hjá frægum köppum og myndum í þokkabót.
Strax á miðvikudag brunuðum við svo á norðurlandið í sveitina, það fannst þeim æði líka að koma í Íslenska sveit með kálfum, nautum, kúm, hestum, hundum og kindum. Fá íslenskt gúllas og hangikjöt og svo þvílíkt bakkelsi í kaffitímanum. Við prófuðum að fara á hestbak og það fannst þeim mikil upplifun. Fengum þvílíkt gott veður að það var varla hægt að trúa því. Reyndar kom þessi svaka þoka þegar ákveðið var að fara að drífa sig á Reykjaströndina til Ástu minnar Birnu í Fagragerði. Það var sem sagt ekki til neins að reyna að fara að sjá Grettislaug eða Drangey, mikill missir það. Daginn eftir skruppum við á Akureyri í sund og skoðuðum aðeins á eyrinni, höfðum svo piknik í Þelamörk og svo var brunað tilbaka til að grilla og njóta góðs matar.
Föstudagurinn fór svo bara í að fara aftur suður í ágætisveðri, fórum reyndar bara heim og lágum þar í leti allt kvöldið, nennti enginn að gera neitt eftir ferðalagið. Laugardagurinn fórum við í sund aftur en völdum vitlausa sundlaug, fórum í Árbæjarlaugina en skandallinn var sá að rennibrautin var lokuð sem var alveg hræðilegt barnanna vegna. Skelltum okkur síðan í Smáralind að borða og skoða okkur um, planið var svo alltaf að fara niður í bæ að sjá menningarnótt en það er skömm að segja frá því að við fórum ekki neitt. Einhvern veginn engin í stuði. Síðasti dagur Palomu og Miguel fór í að taka til í íbúðinni sem við höfðum verið svo blessunarlega heppinn að fá lánaða og auðvita þrif á bílnum. Þessi vika var búin að vera rosalega vel heppnuð með þessa stórfjölskyldu, ég er í skýjunum úr hamingju með líf mitt í hnotskurn þessa dagana.
Knús í bili, endilega kvitta elskurnar
Að koma helgi aftur....vika liðin
10.8.2006 | 15:48
Þetta er ótrúlegt,vikurnar fljúga hjá eins og ég veit ekki hvað. Jæja við höfum það bara gott hérna á klakanum og síðustu daga er veðrið nú ekki búið að vera svo slæmt. Bakið er bara að verða nokkuð gott sem betur fer en ég get trúað ykkur fyrir að ég er nú ekki búin að liggja mikið. Við fórum á þriðjudagseftirmiðdag í Svöluásinn í einar bestu pizzur sem hægt er að fá!!! En svo fórum við snemma heim svo að bakið mitt fengi að hvílast, las í heimilislækninum að oftast væri best við þursabiti að liggja...not ég var náttúrulega ekki búin að gera það. En fór mjög snemma upp í rúm...talaði við Ástu skástu í Fagragerði. Já nýjustu fréttir sem ég fékk á þriðjudaginn af mínum æðislega manni voru þær að greyið var búin að vera 3 daga á spítala í London O my god
aumingin litli alein. Hann fékk víst nýrnasteina en fékk að fara heim á þriðjudag ekki er svo illt að ekki fylgi eitthvað gott því hann flýtti ferðinni um sólarhring í staðinn að verða búin að fá alveg nóg af London.
Vöknuðum snemma því ég var búin að lofa krökkunum að þau gætu farið að heimsækja Andreu Rán og Ingibjörgu Aþenu vinkonur sínar upp úr kl 10, þegar Ólafur væri búin að læra. Það gekk rosa vel og þangað fóru þau. Talaði við yndið mitt og hann hafði bara sofið svona rosa vel og bara stálhress. En viti menn ég var góð stelpa og fór heim og lagði mig eftir að ég fór með krakkana, reyndar fyrst kíkti ég á mín ástkæru Grétu og Steindór sem létu svona þokkalega af sér, svo verð ég að kíkja þangað með krakkana í stutt stopp.
Seinnipartinn sótti ég krakkana en stoppaði náttúrulega í klst hjá Laufeyju í Traðarberginu. Svo lá leiðin til Oddnýjar sem gaf okkur þennan æðislega ofnsteikta kjúlla og grjón. Hún er bara meistarakokkur. Spjölluðum heilan helling en þar sem við hittumst aftur þá var stoppið ekki mjög langt því enn var eftir að hitta Döbbu og Birnu sem báðar voru á leið erlendis daginn eftir.
Birna var á leið til USA en Dabba bara í helgarferð til Köben. Stoppuðum stutt þar og síðan bara heim um kl 22,30 enda komin háttatími fyrir litla grísi hehe.
Í dag vorum við heima í rólegheitunum alveg til hádegis, fengum okkur hamborgara. Ákveðið var svo að endurnýja vegabréf barnanna sem renna út á næsta ári en hvenær veit maður hvort tími verður þá. Upp úr kl 13 voru þau komin aftur í Traðarbergið og er ég á leið þangað að sækja þau og stoppa aðeins lengur en í gær. Ég er búin að vera að dúlla mér hérna....reyndar í smá sjokki yfir þessum hryðjuverkamönnum í London því minn maður á að koma þaðan á morgun. Við setjum nú bara puttana í kross að það verði í lagi og að lögreglan nái öllum þessu bandóðu mönnum.....Að þeim takist nú ekki ætlunarverk sitt.
kveðjur og kossar, sé að þið eruð dugleg að kíkja en væri rosaánægð að fá kvitt.
Úff......
8.8.2006 | 15:31
Jæja nú er komin þriðjudagur og tíminn bara ótrúlega fljótur að líða. Í gær vorum við mestmegnis í rólegheitum í Svöluás en svo var börnunum boðið í mat til pabba síns og á meðan fór ég og Kata mágkona í 2 klst göngutúr um allan Hafnarfjörð. Rosa fallega leið, kjöftuðum heil ósköp. Síðan var mér boðið í kjúlla þar og svo komum börnin rétt fyrir kl 21, svo keyrðum við heim á leið um kl 22.
Í dag vöknuðum við um kl 9 og fórum á fætur settum í vélina, Ólafur Ketill var mjög duglegur að læra. Svo fékk ég þursabit í bakið, hringdi í múttu og hún kom til að fara með okkur í verslunarleiðangur. Fórum í Hagkaup að skipta skóm, keypti sokkabuxur í stórum stíl fyrir Perlu Líf, svo fórum við í 66°norður og þar keypti ég flíspeysur og húfu á Ólaf. Leiðin lá svo í Bónus, mat þurfti að kaupa í búið. Nú erum við á leið í heimsókn á gamla leikskólan Perlu Lífar og Ólafs Ketils og svo í heimagerða pizzu í Svöluásinn.
biðjum að heilsa, bakið fer skánandi.
Komin í húsnæðið...
7.8.2006 | 11:23
Jæja, sem betur fer gekk ælupestin hratt og örugglega fyrir sig. Um kvöldið var Perla Líf orðin fjallhress. Ég sótti Ólaf Ketil til Ísaks Ernis og stoppaði smá stund, svo var taco heima hjá Össa og Kötu. Eftir það lærði Ólafur og svo var farið á rúntinn, fyrst í heimsókn til Önnu, Snorra og Önnu Sólveigar svo til Kalla bróðir og Elínar. Við komum ekki heim fyrr en um miðnætti og þá var börnunum bókstaflega grýtt í rúmið hehe.
Sváfum nú ekkert lengi fram eftir en bara notalegt, fórum upp úr kl 11 að stað á Stokkseyri að heimsækja Afa Gísla, ferðin gekk vel og afi var bara fjallhress og mjög kátur að sjá okkur. Á leiðinni heim lentum við nú í smá leiðindum, keyrðum fram á umferðarslys við litlu kaffistofuna sem betur fer virtist þetta og kom í ljós að engin var alvarlega slasaður. Við fórum í Smáralind á Subway að borða og Kata mágkona kom og hitti okkur til að skoða götumarkaðinn, lítið var keypt en þetta var ágætt. Svo brunuðum við í breiðholtið þar sem við búum núna til Hrólfs og co borðuðum með þeim pizzur frá Dominos. Loksins náði ég að tala við elskuna mína í gegnum skype hann var bara nokkuð hress en haltrandi enn sem pirrar hann mikið. Það líður að því að hann komi ég er orðin óþreyjufull. Fórum svo aftur til Hönnu Maríu að hitta þau. Sara Dröfn var ekkert smá ánægð að sjá Perlu Líf og þær léku helling. Ólafur Ketill gisti svo þar. Þegar við Perla Líf komum heim fór hún í rúmið um miðnætti og ég fór að kjafta við Össa og Kötu.....fram eftir nóttu.
Pabbi Perlu Lífar kom svo og sótti hana um hádegi til að ég kæmist út á flugvöll að keyra liðinu sem var að svíkja lit og fara til Spánar. hehe sem betur fer annars hefðum við ekki íbúð. Og hún fór upp í sumarbústað með honum. Ég renndi svo að sækja Ólaf Ketil til Ísaks Ernis og stoppaði að vanda þar í nokkrar klst. VIð fórum svo á American Style að borða og svo kom Perla Líf frá pabba sínum.
Í dag er ég búin að vera Ýkt dugleg og byrjaði daginn á að fara út að hlaupa. svo að uppfæra síðuna hehe, nú er daman á leið í sturtu. Við ætlum svo að drífa okkur á vit ævintýranna.
knús og kvitta.....
Fríið byrjar vel.....
4.8.2006 | 15:40
Jæja það er nú bara fínt að vera komin á frón. Höfðum það gott hérna hjá bróður og mágkonu í gærkvöldi. Fórum nú frekar seint að sofa og ég var nú alveg búin á því held ég. Ekki búin að sofa í 20 klst og allt batteríið búið. Ætlaði nú að sofa út og nice og svo heimsækja pabba á stokkseyri en hlutirnir virðast ekki alltaf fara eins og þú hefur ætlað þér. Perla Líf byrjaði að gubba kl 4 í nótt og það var nú saga til næsta bæjar. Það tóku við þrif hátt og lágt allavegana svona eins og hægt var um miðja nótt. Svo er hún greyið voða slöpp í dag en við verðum á fullri ferð á morgun býst ég við. Þetta eru sem betur fer ekki langar pestir. Ólafur Ketill var heppinn að þessu leyti og fékk að fara til vinar síns með nýju PSP og harry potter leikinn, Ísak Ernir beið óþreyjufullur eftir að fá hann í heimsókn.
En ég þurfti í rauninni á því að halda að vera í rólegheitum í dag og ná upp svefni undanfarna daga. Þar sem ég hef ekki sofið almennilega í hitanum úti.
Hola guapo, como necesitaba estar en casa hoy, no he hecho otra cosa que dormir con Perla Líf. Esta mejorando porque ha dormido y descansado. Ólafur esta con su amigo y esta noche le recogere. Espero que estes muy bien y nos vemos dentro de una semanita.
besos
knús heyrumst.
Komin á frón.
3.8.2006 | 16:57
Hæ hó það er nú meira veðrið sem tekur á móti manni þegar maður lætur loksins sjá sig á klakanum. Ferðin gekk bara mjög vel en ég svaf lítið í nótt og er því orðin frekar lúin, svaf einhverja klst í vélinni ekkert meira. Er nú í heimsókn hjá mömmu og búin að sækja börnin mín, það var yndislegt að hitta þau eftir þennan tíma. Nú ætlum við að skreppa með töskurnar til Hrólfs og Sólveigar stoppa aðeins þar í heimsókn og svo liggur leiðin í fjörðin til Össa og Kötu þar sem við ætlum að gista.
Á morgun förum við líklegast á Stokkseyri að hitta afa Gísla og svo kannski vonandi að hitta Hönnu Maríu, Ísak Erni og Söru Dröfn. Planið var sko gott veður og sund og fleira en það kemur bara í ljós.
Knús og kossar, verið endilega í sambandi, held að ég sé búin að senda allflestum gsm númerið annars kvartið þið bara hérna inni og ég kippi því í liðinn. Muna kvitt kvitt
Mi Pencho aqui estamos en casa de mi madre, todo muy bien, he comprado la psp para Ólafur y ahora quiere comprarse el juego de Harry Potter. Dentro de poco vamos a casa de Hrolfur para dejar las maletas allí. El coche de Gudrun Anna va muy bien, solo q el tiempo esta un poco fatal. Espero q me mandes alguna noticia tuya esta noche o muy pronto. Besos
Aþena - Santorini - Krít.
15.7.2006 | 09:37
Daginn eftir vöknuðum við í morgunmat og drifum okkur í að leita okkur að leigubíl til að fara að sjá Parþanenon. Við vorum 8 í hóp, Ég, Sóldís og börnin, Jose Maria, Chiqui og krakkarnir þeirra. Leigubílarnir sem voru fyrir utan skipið vildu nú bara buisness, bjóða þér 4klst ferð og vesen en við vildum bara taxa sem kæmi okkur þangað og tilbaka. Hóuðum í taxa aðeins frá og þá byrjaði ævintýrið þetta var grískur kall, besta skinn, talaði í bland ensku og ítölsku eheh. Viti menn hann tók okkur öll í einn 5 manna bíl!!!! við vorum semsagt 9 manns í venjulegum Mercedes Bens haha
ég hló mig brjálaða og þetta var ótrúlegt. Sjáið þið einhvern gera þetta á Íslandi hehe. Ferðin upp að hæðinni hefur tekið svona 20-30 mín stoppuðum í rúma klst og leigubílstjórinn beið á meðan. Þetta var engin smá upplifun að sjá þessar gömlu rústir fyrir utan að Ólafi Katli og flestum grísunum fannst þetta leiðinlegt vegna hita og svoleiðis.....svona eru börn. Fórum niður í skip til að borða og hafa það gott og vera með í sem flestu sem var að gerast þar. Lögðumst meðal annars í sólbað og fórum í heitu pottana. Um kvöldið var náttúrulega nýtt show og svo borðuðum við á 4-5 stjörnu veitingastaðnum um borð. Geggjað.......fórum að sofa seint og síðar meir.....en þá vorum við á leiðinni til eyjarinnar Santorini.
Þegar við vöknuðum daginn eftir voru þessar yndisfögru eyjar sem blöstu við. Fórum upp í morgunverð og þá kom í ljós að það var hífandi rok. Skipstjórinn ákvað þar sem ekki er bryggja á Santorini að það væri því miður ekki hægt að stoppa þar vegna vinda. Stuttu síðar var okkur tilkynnt að við myndum stoppa á eyjunni Krít. Okkur fannst þetta fúlt því búið var að segja okkur að Santorini væri með fallegri eyjum þarna á svæðinu og að sjá þær í fjarlægð gat maður alveg ímyndað sér það. En það er víst ekki hægt að deila við dómarann.
Krakkarnir voru bara í krakkaklúbbnum að skemmta sér og þau voru meira og minna týnd um skipið!! Það kom fyrir að maður hafði smá áhyggjur en samt aldrei mikið þar sem þau voru eiginlega alltaf 2-4 saman. Eftir mat var lagt að bryggju á Krít og við konurnar ég, mamma og Chiqui fórum frá borði til að skoða okkur um á eyjunni, Jose var slappur með svima og börnin vildu bara vera um borð að leika sér. Sem var æðisleg hugmynd.
Við vorum um 2klst á röltinu og kíktum á eitthvað fornminjasafn sem var eiginlega mjög flott en á endanum er þetta allt svipað og hundleiðinlegt!! Krít er ágætisstaður og það var gaman að koma þangað. Jæja svo seinnipartinn var náttúrulega bara brjálað að gera um borð í skipinu og það var æææ man ekki hvað þetta er kallað......gæjarnir að klæða sig upp sem gellur.....það var bara gaman að sjá þá suma og svo þeir sem unnu um borð í skipinu voru ekkert smá flott klæddir sem gellur.
Jæja fljótlega heldur ferðasagan áfram, ég er eins og er heima hjá mér sem kemur ekki oft fyrir þessa dagana á meðan börnin eru heima á Íslandi. Er í dekri heima hjá kærastanum og að njóta lífsins og ætla sko að gera það til hins ýtrasta á meðan tækifæri gefst!! Held áfram að tönglast á því að ég er að springa úr hamingju og ást þessa dagana og vona sem flestir séu jafn lukkulegir með lífið og ég þessa dagana!!! Ég kem til Íslands í byrjun ágúst og verð alveg í heilan mánuð, ætti ekki að missa af að hitta neinn. Kærastinn kemur um 12 ágúst og verður í 10 daga. Æi þetta verður yndislega notalegt.
Hita og sólarkveðjur héðan.
Skemmtiferðaskipið Sky Wonder!
11.7.2006 | 18:47
Hér heldur frásögnin af ferðalaginu okkar frábæra áfram, svo ég láti vita þá mun ég reyna að setja inn myndir fljótlega.
Semsagt á mánudegi var flogið í 747-200 júmbó þotu frá Madridar til Aþenu höfuðborgar Grikklands. Flugið gekk frábærlega en því miður þurftum við svo að vera næstum klst til að komast niður í skipið. Sem betur fer þurftum við ekkert að hugsa um farangur sem í raun var stórskrýtið fyrir fólk sem er vant að ferðast og hefur alltaf þurft að sækja töskur og vesenast. Í rútunni var ógeðslega heitt, kl orðin fjögur seinnipartinn og flestir búnir að vera á ferðalagi síðan kl 7 um morguninn.
Vá þegar í skipið kom....tóku við okkur þjónar sem tóku allan handfarangur á sínar herðar og fylgdu þér í þína káetu. Við vorum í káetu á 5 hæð af 11 nr C202. Fengum smá sjokk þegar þangað kom því við fundum ekki rúmin barnanna, o mæ god, en svo kom herbergisþjónninn okkar og renndi rúmunum niður úr loftinu hehe. Káetan var fín, eins og á fínu hóteli fyrir utan minibarinn sem er ekki þörf á þegar þú ert með allt borgað fyrirfram á börunum og veitingastöðunum.
Við drifum okkur nú bara upp á 8 hæð að fá okkur síðdegissnarl og kynnast skipinu aðeins, finna hlutina. Fórum aðeins í heitu pottana og slöppuðum af, dagurinn leið hratt og við borðuðum á pizzu staðnum um borð, sáum skemmtunina sem voru flottir dansar og æði. Fórum frekar snemma í háttinn eða um kl 1til að geta farið til Aþenu að sjá herlegheitin Parþanenon og útileikhúsið og ýmislegt fleira.
Lífið hér hjá mér er yndislegt núna, börnin fóru til Íslands til pabba síns og gekk allt vel. Ég svíf á bleiku skýi þessa dagana því ástin liggur í loftinu og það er langt síðan mér líður svona vel.
Stóra fréttin er að hann ætlar að koma til Íslands um miðjan ágúst þannig að þið fáið að hitta herramanninn. Ég er að springa úr tilhlökkun :).
Knús í bili og meira mjög fljótlega.