Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Besti júlímánuður í mörg herrans ár!!

Vá síðast bloggaði ég ekki afþví að það var fullt að gera með börnin og Gréta mín yfirtók tölvuna mína en núna er það bara eitthvað annað hahahaha.  Er búin að vera á fullu, er búin að vera að vinna svona ca tvo seinniparta í viku til að geta verið heilar 5 vikur á Íslandi og þar sem samstarfskonur mínar eru í fríi er svosem nóg að gera.  Því ég skilaði inn VSK í morgun sem betur fer og þá er frekar rólegt það sem eftir er.  Svo höfum við spilað padel eitthvað og það er alltaf jafn gaman annars er hægri handleggurinn eitthvað að stríða mér, einhver sinaskeifubólga eða eitthvað. 

Um helgar og á miðvikudögum hefur verið reynt að fara í bátinn, Clöru og Domingo en í síðustu viku var rigning þannig að við fórum bara í bíó vinkonurnar hehehe. Fórum að sjá Sex in the city og það var mjög gaman en hún var auðvitað með spænsku tali og það er það versta sem ég veit en þessir vitleysingar kunna enga ensku þannig að ég verð að gjöra svo vel hehehe. Svo var bjór og bakkelsi heima hjá Clöru og Domingo og þar vorum við Martin til kl 1 að nóttu og hlógum mikið og skemmtum okkur, vorum líka að planleggja ferðina til Íslands á næsta ári.  Kvöldið á undan fór ég með Martin að kynnast besta vini hans og fullt af fólki, þá var heldur ekki farið að sofa fyrr en klukkan rúmlega 1 eða meira úff, líkaminn er að hætta vera sammála þessu. hehehe. 

Ein besta ferð sem ég hef farið í lengi var þarsíðasta helgi, við Martin fórum til Cuenca það er í ca 3klst héðan frá Murciu.  Lögðum af stað í 40° hita á föstudagseftirmiðdegi og vorum komin um rúmlega 21.  Lengst í burtu frá öllu sem heitir menning, vorum í fjöllunum í þvílíku næði og krúttleg heitum, Martin tók með sér kampavínsflösku það var geðveikt og mjög rómó.  Við pöntuðum hótelið með öllum mat inniföldum og þar gerðum við vitleysu því þeir gerðu ekki annað en að troða okkur út hahaha. En í raun er ekki hægt að kvarta, mjög góður matur.  Á laugardaginn fórum við að uppsprettu ár sem er stór þarna og það var ekkert smá fallegt, ég fékk mikla heimþrá til Íslands að sjá allt þetta landslag, vá mar og að vera með manneskju sem manni er farið að þykja svona vænt um vá þetta var ólýsanlegt.  Martin er þannig að ef hann sér "poll" eins og hann segir þá verður hann að fara útí og það gerði hann, það fraus reyndar allt undan honum en hann dýrkar þetta. Um kvöldið vorum við svo með leiðsögumann sem leiddi okkur upp og niður Cuenca í 1 og hálfan klukkutíma og svo aftur að borða vá þetta var ótrúlegt.  Erfitt að lýsa þessari ævintýralegu ferð hér en þetta verður að duga.

Annað ævintýri var svo farið á seglskútunni núna um helgina, fórum á litla eyju sem er í Mar menor og þar var sko sett upp tjald og gist.  Við settum að landi um 21 og þá var enn dagur og svolítið skýjað en mjög fallegt og sólin að setjast.  Við borðuðum svona flotta smárétti um borð í skútunni, lax, osta, marmelaði og alls konar góðgæti, auðvitað voru drykkjarföngin ekki af verri endanum rauðvín, hvítvín, bjór, kampavín og svo Chivas viský á eftir gott bað í sjónum undir fullu tungli.   Þessar myndir fáið þið að njóta núna en það vantar enn myndir frá Cuenca og fullt af hlutum.  Þær koma inn síðar.  Knús í klessu, sé ykkur eftir 10 daga!!!


Ha Ha og Hó Barnlaus og frjáls hehe.

Jamm loksins ein á báti hehehe, það er alltaf frábært allavegana fyrstu dagana.  Já börnin eru semsagt komin til Íslands fyrir þá sem ekki vita og eru hjá pabba sínum.  Litla Perla Líf mín er 8 ára í dag!!!  Til hamingju elsku dúllan mín, hafðu það rosalega gott á Íslandi.  Við héldum afmælisveislu á föstudaginn með Zaidu úti á róló, Nabila kom hérna á fimmtudeginum til að vera við afmælið og gistu hún og Arslan 2 nætur hjá okkur.  Heppnaðist afmælið bara rosalega vel og við skemmtum okkur eins og alltaf.  Svo kom Martin með ísköku handa Perlu Líf og við borðuðum hana með bestu lyst, svo sátum við hérna og kjöftuðum og hlógum okkur brjáluð.  Á laugardaginn fórum við í Terra Mitica fyrir Grétu og líka til að kveðja krakkana og í tilefni af afmæli Perlu Lífar, þetta var ein af bestu ferðunum í Terra Mitica sem ég hef farið, við vorum bara að chilla og Gréta og ég trufluðumst í rússíbönunum.  Svo var drifið með krakkana á flugvöllinn og það var grátur og gnístann tanna, þau vildu alls ekki fara.

En við erum semsagt búin að vera með hana sætu Grétu okkar í heimsókn, þessvegna hef ég ekki átt líf!!! Þá meina ég að það var yfirtekið sjónvarpið og talvan mín og allt undirtekið fyrir utan það að við fórum mikið á ströndina, í sundlaugina fór Gréta með krakkana á morgnanna á meðan ég var að vinna, algjör dúlla.  Við erum búin að fara tvisvar á seglskútu, svo gistum við einu sinni í strandhúsinu hans Martin á ströndinni Torre de la horadada og það var ógeð notalegt.  Gréta mín var að yfirgefa mig ánægð og sæl, mig hefði sko alveg langað að hafa hana lengur því hún er búin að rosalega góð og sátt með lífið hjá okkur og langaði alls ekki að fara hehehe!!!  En nú er ég orðin ein og það verður líka yndislegt. Fljótlega ætla ég að setja inn myndir frá seglskútunni eitthvað frá Madrid og fleira frá því að Gréta var hér.

Knús í klessu allir 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband