Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Allir farnir heim....

Ja það hlaut að koma að deginum, nú eru allir gestirnir okkar farnir.  Það er að segja gestir hún Þurý mín var nú varla gestur lengur eftir að hafa verið hérna í 3 mánuði og í íbúð sér og allt.  En allavegana  hún og Steinar komu úr ferðalaginu á sunnudag og ég hitti þau nú ekki fyrr en á þriðjudag.  Það var svo brjálað hjá mér að gera á mánudaginn, fór í media markt fyrir Össa bróðir að kíkja á verð á minniskortum í myndavélar, svo var ísskápurinn eitthvað svo tómur að það varð að fara í Mercadona að versla allavegana eitthvað, vatn og nauðsynjavörur.  Nú mín vildi líka flýta sér heim til að vita hvort að Fulgen myndi nú láta vita eitthvað af sér....var sko ekkert búin að heyra í honum nema smá email um morguninn.  Var sko á hlaupum því svo átti ég að mæta í laser kl 15.30, úff ekki tími til neins.  Skellti mat í andlitið á mér og svo talaði ég við Fulgen á skypinu í smá stund, hann var voða þreyttur enda ekki næstum búin að ná tímamismuninum sem eru 7 klst, fyrir utan allt ferðalagið.  Þessi elska saknaði mín fullt og var búin að kaupa ýmislegt handa mér.

Fór svo út að borða með Þurý og Steinari á Casa Carmelina í hádeginu á þriðjudag svo vorum við að snúast í búðum að athuga með 20" sjónvarp handa þeim, koma krökkunum í sund en sem betur fer leyfði Paloma mér að skilja þau eftir hjá henni þangað til að þau áttu að mæta.  Keyrði svo Steinar og Þurý heim seint um kvöldið það var komin tími til að pakka.  Í gær var rólegt, æi það var notalegt.  Reyndar fór ég með bílinn í skoðun til tryggingafélagsins sem á að borga skemmdirnar á honum en  þetta gekk allt mjög vel.  Enn einn mánuðurinn að klárast og við förum í stúdents útskriftina hennar Palomu á föstudaginn hún fékk yfir 9 í meðaleinkunn hún er ótrúleg.

Jæja nóg í bili, biðjum að heilsa öllum. 


Fermingar...úff.

Jæja loksins, lofa ég að tala ekki meira um fermingar á þessu ári eftir þessa færslu!!! Í dag vorum við boðin í 4 fermingar, ótrúlegt en satt okkur tókst að mæta í 3. Það byrjaði á kirkjunni og þar voru öll þessi 4 börn voru að fermast í sömu kirkjunni sem betur fer.  Svo fór Ólafur Ketill í veisluna til Maríu del Mar sem ávallt er kynnir með honum í skólanum og sér vinkona.  En Perla Líf og ég fórum allaleiðina til Lorca að vera við veisluna hennar Belen.  Föðurfjölskylda hennar sá um veisluna og þau eiga nú dáldið af peningum svo að það var ekkert til sparað í þeirri veislu, maður bara át á sig gat en lét nú áfengið vera þar sem eru rúmir 40 km aftur tilbaka til Murciu.  Kl rúmlega 18 þá brunuðum við Perla Líf aftur til Murciu því þar beið okkur svona barnalands veisla eins fermingarbarnsins sem var haldin eftir aðalveisluna.  Þar var meiri drykkur, meiri matur en börnin hoppuðu og djöfluðust í tækjunum til um kl 21, þá var að sækja Ólaf Ketil og nú er komin ró á liðið.  Maður er sko alveg búin eftir svona dag úff.  Þær eru búnar fermingarnar sem ég veit um í ár, jibbý.

Annars gleymdi ég alveg að minnast á brúðkaupið sem ég og Fulgen fórum í um daginn, það var mjög skemmtilegt og kannski ekki mikið frásögufærandi nema þetta var æskuvinur Fulgen sem var að gifta sig í annað sinn eftir að hafa misst konuna sína úr krabbameini.  Þar af leiðandi voru þar margir æskuvinir hans og það var mjög gaman að kynnast öllu þessu fólki og Fulgen lék á alls oddi, vildi meira að segja dansa og bara frábært.  Skemmtum okkur þrusuvel.

Ég ætla nú bara að taka það rólegt, sjá hvort að Fulgen minn vaknar þarna lengst í burtu svo að ég geti heyrt aðeins í honum annars verður bara farið snemma í háttinn.  Ein búin að fá nóg. 


Það hlaut að koma að því!!!!

Sælt veri fólkið, hér er nú bara búið að vera notalegt með gesti í heimsókn.  Reyndar byrjaði ferðin vel hjá greyið Össa og Kötu.  Á fimmtudaginn ætlaði ég að vera rosalega góð að bjóða þeim á fínan hrísgrjónastað og þau komu eftir að vera búin að rölta á markaðin og svona um bæinn til mín.  Haldið þið ekki að við lendum í 4 bíla árekstri.  Þetta er í fyrsta skiptið sem ég lendi í árekstri en einhvern tímann er allt fyrst.  En málið var að það snarhemluðu bílarnir fyrir framan okkur og ég náði sko að bremsa þó dálítið frá næsta bíl en sá sem kom á eftir var ekkert að horfa og bremsaði ekki einu sinni.   Þannig að hann lenti aftan á okkur og henti okkur vel á næsta bíl. Ég var semsagt í 100% rétti og það á að kíkja og laga bílinn minn í næstu viku. En við erum heil og það er fyrir öllu.  Reyndar þurftum við að hanga þarna með löggunni í rúman klukkutíma og þá var bara komin tími til að sækja krakkana og við ákváðum bara að fara að fá okkur kebab í verslunarmiðstöðinni.

En vikan eins og ég segi er búin að vera mjög fljót að líða og það er búið að vera frábært að hafa Össa og Kötu við erum strax farin að sakna þeirra.  Við fórum með þeim á ströndina, var reyndar hávaða rok og læti en var samt bara fínt.  Össi spilaði padel við mig, Fulgen og Miguel og svona liðu dagarnir.  Við fórum í kvöldmat á spænskavísu til Jose bróðir Fulgen og Chiqui konunar hans og fullt af nágrönnum þeirra og það var svona mjög typical spænskir réttir, alveg brilliant.

Nú er krúttið mitt að fara til Japan í kvöld og verður í viku, það verður svo sem nóg um að vera hjá okkur, það eru bara 4 fermingar á sunnudaginn.  Þurý og Steinar fara að koma tilbaka og fara reyndar næstum strax til Íslands.  Svo líður hægt og sígandi að skólaslitum, Ólafur Ketill er búin að brillera í síðustu prófum og ég óska þess að næsta ár og árin þar á eftir reynist honum svona auðveld og skemmtileg í skólanum.   Jæja hætt í bili.


Heimsóknir, brúðkaup og fermingar....

Halló halló,

Veit varla hvernig ég á að komast framúr þessari helgi sem er framundan, held samt að ég byrji á að biðja um frí á föstudag því seinnipartinn erum við Fulgen boðin í brúðkaup hjá mjög góðum vini hans.  Auðvitað sem kona verð ég að láta laga á mér hárið og aðeins að farða mig, annað gengur ekki og ef ég er að vinna fram eftir þá get ég lítið gert held ég.  En allavegana Össi og Kata koma líka á morgun sem er mikið tilhlökkunnarefni, en það er verst hvað helgin er pökkuð eitthvað.  Á laugardagseftirmiðdaginn er okkur boðið í afmæli hjá lítilli vinkonu og svo fer Ólafur Ketill í fermingu á sunnudaginn, sem betur fer var okkur ekki öllum boðið í hana.  Fulgen er líka að fara í fermingu með sín á sunnudaginn til frænda í mömmu þeirra ætt.  Mig langaði mikið að reyna að fara á ströndina helst báða dagana um helgina ef þá Össi og Kata vilja ekki gera eitthvað annað.

Í gær fór ég í smá kaupleiðangur, langaði í fleiri buxnapils fyrir padel og eitthvað sætt og mér tókst að kaupa mér 2 pils og einn bol.  Ólafur Ketill ætlaði að kaupa sér nýjan mp3 spilara sem voru á tilboði í einni búð en þeir voru því miður allir búnir...hljótum að finna einhverja ódýra annars staðar.

Er aðeins byrjuð að hreingera áður en gestirnir koma, þetta er mest ryk en það verður víst líka að þrífa það.  Svo á morgun ætla ég að taka allar sængur í burtu og þá verður þetta allt klárt.  Ætla að drífa mig í leikfimi og padel í dag svo verður örugglega minna um leikfimi á meðan Össi og Kata eru hérna þó að ég sleppi nú ekki padel, það er á hreinu!!!


Það er komið sumar!!!

Úff og rúmlega það mar....við erum enn í júní og það er búið að vera um 35° á hverjum einasta degi núna.  Það hefði mátt vera meira jafnvægi í þessu ekki bara úr kulda í þennan svaka hita.  Hefði viljað hafa mánuð bara með 25°-30° en það er ekki hægt að biðja um allt í þessu lífi.

 Vikan er bara búin að líða á hundrað, ég prófaði nýja leikfimi tíma á þriðjudaginn sem heitir Workout og það er svaka skemmtilegt og ekki of erfitt til að spila Padel á eftir.  Þessi tími fer bara eftir því sem þjálfaranum dettur í hug þann daginn, sú sem er með þennan tíma er algjör bomba, endalausa orku og svo svitnar hún fyrir okkur öll.  Þannig ég fór í þennan tíma líka á fimmtudag, svo í spinning á föstudag en þurfti fyrst að hlaupa heiman að frá mér í 34°hita því bílskúrshurðin var biluð, úff mar.  Við fórum að sækja hann Steinar á flugvöllin á miðvikudag og það var farið mjög seint að sofa, á fimmtudag komu Þurý og Steinar heim til Fulgens í heimsókn um kvöldið og það var líka farið seint heim hehe.  Föstudagurinn var rólegri og ég var með Perlu Líf úti á róló heillengi svo fórum við til Fulgen.

Gærdagurinn var frábær, krakkarnir fóru í Cordillera að leika sér en ég og Fulgen fórum til Campoamor að borða með vinafólki, Henar og Samuel sem á risastóran (snauzer) sem er risastór hundur veit ekkert hvað tegundin heitir á íslensku, hann var bara flottur.  Fulgen var heillaður því hann átti einn svona áður en að krakkarnir hans fæddust.  Svo spiluðu Fulgen og Miguel keppni saman í tennis og það gekk svona lala en skiptir mestu máli að vera með.

Um kvöldið horfðu krakkarnir á Eurovision en við fórum aftur með vinafólki okkar, spiluðum billjarð og bowling...mér gekk frábærlega, vann allt liðið hehehe ;).  Í dag dóum við Miguel næstum því við fórum að spila padel kl 11 og það var brjáluð sól og 30° hiti, rétt tórðum í næstum einn og hálfan tíma.  Það var samt gaman.  Annars á bara að taka því rólega í dag, taka aðeins til heima því nú koma Össi og Kata á miðvikudag, jibbý. 

knús í klessu


Hljóðfæraverslunin Klavier á Spáni.

Gott fólk, ég á til með að benda þeim sem eiga leið um á suðurströnd Spánar, Alicante eða þar í kring og hefur áhuga á hljóðfærum, nótnabókum og öllu sem því tilheyrir er frábær búð í Alicante, Murcia og Albacete sem heitir Klavier.  Þeir selja allt þar á milli himins og jarðar sem við kemur þessum geira, og ef þeir eiga það ekki til þá er alveg möguleiki á að biðja um að það sé pantað. Fer náttúrulega eftir því hvort fólk hefur nógan tíma til að bíða eftir vörunni.

Verðið er mjög gott, allavegana yfirleitt ódýrara en á Íslandi.  Mæli eindregið með þessari verslun, er komin með slóðina hérna til hliðar á síðuna en hún er: http://www.klavier.es.  Endilega kíkið og hikið ekki við að biðja um upplýsingar.  Vonandi getið þið notfært ykkur þessar upplýsingar.


Hvaða leti er þettað eiginlega...

Jæja leti og ekki leti, hér erum við, var búin að skrifa ágætan helling á laugardaginn og þá var örugglega mbl liðið að uppfæra síðuna eða eitthvað, ógeð fúlt.  En það er svo sem ekkert mikið búið að vera að gerast, í síðustu viku vorum við bara að þessu venjulega, fórum í tennis á miðvikudag sem var rólegt því það var hálfskýjað.  Á fimmtudag fóru krakkarnir í sund og ég í padel en samt var þetta skrýtin dagur því það kom hellidemba í 2 mínútur um kl 19 og ég fékk sjokk og hélt að padel myndi verða frestað.  Ég spilaði bara mjög vel og þetta var mjög gaman.

Á föstudaginn var ég með svo mikið ógeð af sjálfri mér að ég fór sko í spinning kl 17, Perla Líf var heima hjá Fulgen á meðan og svo sóttum við Ólaf Ketil heim þegar hann var búin í tennis og svo var kvöldið bara notalegt, með Palomu og Gaby sem elduðu hamborgara fyrir krakka gemsana eða réttara sagt Paloma gerði það á meðan Gaby spilaði við mig biljarð hehe.  Við spiluðum slatta biljarð um kvöldið því stóru börnin horfðu á Drakula, Perla Líf og Ólafur á aðra mynd uppi á meðan ég vann öðru hvoru Fulgen hehe.  Svo fór ég bara upp í rúm að lesa en Fulgen að svara mailum vegna vinnunar og ýmislegt svoleiðis.  Notalegt kvöld í hnotskurn.  Á laugardag löbbuðum við aðeins hingað heim, ég tók úr þvottavélinni og Ólafur Ketill lék við vini sína meðan Perla Líf var inni með mér að leika.  Borðuðum hjá Fulgen, svo setti þessi elska WIFI net hjá mér, loksins get ég farið að nota nýju fartölvuna mar.

Keyrði svo Önnu Láru og Reginn Frey út á flugvöll og auðvitað kom Þurý með, vorum sko slatta tíma í biðröð eins og alltaf í íslandsflugi frá Alicante ógeð.....En þetta gekk samt vel, kom heim næstum um miðnætti, fékk mér samloku, kom grísunum niður og við kíktum á gamla James Bond mynd.

Enn ein fermingin var svo á sunnudag, ég passaði mig nú á að borða ekki svona svakalega hehe. Hún var fín nema Perla Líf er að verða kvefuð og veik eftir að hún rennbleytti sig um daginn.

Hvað er svo með þessa svokallaða vini mína sem aldrei kvitta????? Eruð þið öll svona rosalega upptekin.  Ja vona að þið séuð ekki hrokkin uppaf.....hættið þessari leti og kvitta öðru hvoru.

PS Til hamingju Elsku Guðrún Anna mín og fjölskylda með nýja fjölskyldumeðlimin hana Emilíu Luz sem kom í heiminn í nótt.....eins og ég var viss um að hún myndi fæðast 7unda sem er heilög tala og í stíl við Perlu Líf og líka hann Konna Kalla hennar Þóreyjar. 

Knús úr miklum hita og sól, og kveðja til allra...


Verkalýðsdagurinn....í rólegheitum

Knúsudýrið mitt kom nú heim á mánudagseftirmiðdaginn þegar við vorum í barnaafmæli hjá bekkjarsystur Ólafs Ketils, Belen en það voru bara mjög fáir og bara notalegt. Svo var sko brunað til Fulgens því frídagur daginn eftir og um að gera að notfæra sér það og horfa á góða videomynd, spila billjard og kúra, æi það er svo notalegt.  Spiluðum 2 leiki í billjard og ég er nú orðin þokkalega góð og farin að vinna uppá eigin spýtur ehheeh, þá fyrst fer þetta að verða gaman.

Á verkalýðsdaginn sjálfan dúlluðum við okkur bara í þessu aðeins í heimilisverkum, búa til mat, kjúlla í ofni og notalegt.  Horfðum á eina eldgamla James Bond mynd og hún var bara þokkalega góð.  Svo komu Nando og Silvia með krakkana sína og það varð nú að spila á móti þeim og það var geðveikt fjör.  Svo inn á milli er búið að rigna eldi og brennisteini, eins og í gærkvöldi.  Svo í dag var skýjað en samt fínt veður svo í 2 mínútur kom þessi hellidemba að það var ótrúlegt en svo kom sólin bara aftur.  Þannig að verkalýðsdagurinn okkar var bara rólegur.   


Fermingar á spænska vísu......

Jább hér er búið að vera fjör eins og oftast.  Reyndar verð ég nú að segja ykkur alveg eins og er að ég var í þvílíku óstuði í síðustu viku að vera mamma, æi sorry ég var bara búin að fá gjörsamlega nóg.  Nú það sem mín gerði í því var að panta ferð til Mallorka í lok júní þegar skólinn er búin hjá krökkunum í eina viku.  JESSS er að fara í flugvél það er nóg fyrir mig hehehe.  Þar sem kallinn gerir ekkert annað að ferðast þá er hann ekki að skilja það að ég er ekkert búin að ferðast og ég verð brjáluð á vorin ef mér er ekki sleppt minnsta kosti í eitt ferðalag en þá meina ég ferðalag sem er allavegana ein helgi og helst í flugvél heheheh. Bið ekki um lítið.  En allavegana hann verður í Bandaríkjunum þegar við förum til Mallorka, þetta verður frábært en vika með hálfu fæði, hlakka ekkert smá til.

Jæja síðasta vika nú reyndi að kíkja aðeins með Þurý minni, Önnu Láru og Reginn svona eitthvað fórum út að borða saman og svona hittumst eitthvað smá.  Á fimmtudaginn átti að vera rigning svo þær vildu fara í verslunarleiðangur og fóru í nýju verslunarmiðstöðvarnar hérna uppfrá að eyða fullt af dinero!!!  Ég ætlaði með Jose til Albacete en það varð á endanum Fulgen sem var nú ekki verra mar.....fórum út að borða með Ruben og Paco sem vinna í Albacete og það var bara borðað á sig gat en það besta var eftirrétturinn sem var úti í náttúrunni á milli skúra. hahahahha ;)

Hitti Þurý og Önnu smá stund í verslunarmiðstöðinni en svo langaði mig svo rosalega í Padel að ég þaut og var aðeins sein en það var sko þess virði, mér finnst þetta ekkert smá gaman, veit ekki hvað ég geri þegar sumarfríið byrjar mar.  Svo þurfti sko að græja allt fyrir hátíðina í skólanum hjá krökkunum, Perla Líf var í svona hátíðisbúning þannig að það þurfti að strauja hann og svo átti ég að koma með kartöflur á spænska vísu í skólann daginn eftir líka, úfff var sko ekki að nenna þessu. Sem betur fer hringdi Þórey og skemmti mér á meðan ég var að stússast þetta.

Á föstudaginn var svo stóri dagurinn, og hvað annað rigning um morguninn en það stytti sem betur fer fljótt upp og hátíðin gat byrjað, hálftíma of seint en samt, frábært. Auðvitað kom svo sólin á milli skýjanna og grillaði mannskapinn en þetta heppnaðist mjög vel, Þurý, Anna Lára og Reginn komu náttúrulega að sjá krúttinn á sviðinu.  Ólafur Ketill og María del Mar voru aftur kynnar hátíðarinnar og stóðu sig með einsdæmum.  Þau voru öll frábær.

Svo var sko haldið heim með Perlu Líf fengið sér að borða og svo rússað til Torrevieja að leita að skrappbúðinni sem Önnu Láru langaði svo í, þetta var hennar æðsti draumur þannig að það varð að uppfylla hann ekki annað hægt.  Fundum hana eftir svolitla leit en það var þess virði, kíktum svo á húsið Þurýjar og Steinars sem er bara alveg að verða tilbúið mar......geðveikt og borðuðum á gamla Freddabar rétt hjá Melrose.  Svo varð ég nú að fara að gista heima hjá krúttinu mínu því hann var svo að fara í brúðkaup hjá frænku sinni í Asturias.

Á laugardaginn var sko farið í verslunarleiðangur með Chiqui, keypti flestar fermingargjafirnar úff þar var þungu fargi létt mar og svo keypti ég mér pils, skó og sætan bol til að vera í fermingunni daginn eftir hjá Adrian. Borðuðum heima hjá Chiqui og Jose og vorum með þeim alveg til miðnættis á flakki heheh.

Svo kom fermingin besta vinar Ólafs Ketils á sunnudeginum úff....það voru bara 8 klst í fermingu ótrúlegt en þá meina ég frá því að kirkjan byrjaði þangað til að við fórum heim.  Þetta líktist SKO ekki neinni fermingu, ég held að ég hafi aldrei borðað svona mikið á ævinni.  Ekkert smá gott, úff ég bæti bara á mig nokkrum kílóum eftir þessar 3 fermingar sem ég á eftir...NEI beint í spinning og Padel mar.  

Nóg af röfli í bili, knús 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband