Myndir Myndir!!!

Haldið þið ekki að mín hafi sett inn nýjar myndir.  Þetta er ótrúleg framför hahaha. En ég byrjaði að vinna í dag.  Þurfti að hafa krakkana með mér sem er nú alls ekki það besta, lítið hægt að gera með þau yfir mér.  Gerði þetta svona í dag því ég fór með Perlu Líf til augnlæknis sem sagði að hún væri með smá breytingar á sjóninni en hann vildi ekki láta hana fá gleraugu strax, sem betur fer.

En það þarf víst að fylgjast vel með henni ef þetta versnar.  Nú er ekki nema 8 dagar þangað til að skólinn byrjar hjá þeim sem betur fer, þá fer nú lífið endanlega í réttar skorður.  

Fulgen og ég erum byrjuð að fara út að hlaupa saman og hann vill endilega að við förum í hálft maraþon saman.  Hann segir að ég hafi alveg þol í það en ég er nú ekki svo viss haha.  En ef hann hefur trú á mér þá er best að kýla á það og reyna að minnsta kosti.  Jæja nóg í bili. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Hæ Guðrún.

Flottar myndir og frábært framtak að setja þær inn. Láttu reyna á þolið, hálft Maraþon er fínt í byrjun, Oprah lét sig hafa það að hlaupa og fór bara létt með það. Þú hefur sýnt að þú getur nú ýmislegt.GO GIRL. Um að gera að æfa sig fyrir hlaupið þú hefur nú verið í líkamsrækt og Padel og það styrkir örugglega. Good Luck

Knús til allra .  Sóldís

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 3.9.2007 kl. 17:18

2 identicon

Frábært framtak, loksins komnar myndir ;0)  Vona að dugnaðurinn endist og þú skellir inn nokkrum við og við.  Það var frábært að hitta krakkana í sumar og auðvitað Kjarra líka.  En þig vantaði alveg, sakna þess að hitta ykkur ekki oftar, sýnist að krakkarnir mínir hafi heldur ekki haft á móti heimsókninni.  Vona að þið hafið það rosa gott.  Heyrumst fljótlega.  Kv. Þórey og co

Þórey (IP-tala skráð) 4.9.2007 kl. 11:05

3 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Þú hafðir svo sannarlega rétt fyrir þér með, "Prison Break."

Ég náði í, "The Complete First Season," þær eru svo spennandi og það er komið meira af þessum myndum, ég er alveg, "Hooked." Meiriháttar!!!!!!!!!!!

Heyrumst.....Sóldís

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 4.9.2007 kl. 13:27

4 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Hæ Guðrún.

Farðu inn á bloggið mitt, plís, og lestu greinina hennar Agný,þetta er stórfróðleg og merkileg grein.

Sóldís

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 12.9.2007 kl. 10:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband