Stuð djamm eftir langt hlé!

Vá ég veit að ég hef verið löt og allt það en það er bara nóg að gera og það breytist lítið.  En langar að deila með ykkur að þegar við komum aftur frá Mallorka þá var búið að plana djamm með Padelhópnum mínum.  Nú krakkarnir fóru til vina, Ólafur Ketill fór alla helgina með tvíburunum vinum sínum á ströndina og skemmti sér náttúrulega frábærlega, en Perla Líf var hjá Chiqui og Jose á föstudagskvöldið og svaf þar.  

Nú ég fór og sótti Evu og við hittum fólkið á veitingastað niðri í bæ, var svo heppinn að foreldrar hennar eiga íbúð niðri í bæ þannig að við höfðum stæði til að leggja bílnum, geggjað.  Fengum fínt að borða á ítölskum veitingastað og upp úr miðnætti drifum við okkur að fara að kíkja á pöbbana.  Úff það sem við gátum hlegið, dansað og skemmt okkur var nú bara alveg geðveikt.  Kennarinn okkar vinnur svo líka á stóru diskói sem er opið langt frameftir og þangað fórum við og ókeypis drykkir.  Vorum mjög lengi eða ég var komin heim til mín upp úr kl 6 um morguninn.  En ég verð að segja að ég hef ekki skemmt mér svona vel mjög lengi.....endurtökum þetta sko pottþétt! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

  • Eins og mig grunaði...flott ferð til Majorka. Ég held maður verði bara að drífa sig í Padel, félagsskapurinn er svo frábær. Er búin að hringja útaf Sumarferðum segi þér frá því á Skypinu. Allt gengur eins og best verður á kosið.
  • Heyrumst....bið að heilsa börnunum og þér sjálfri. Knús til allra. Sóldís

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 11.7.2007 kl. 11:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband